Faxi

Volume

Faxi - 01.04.1989, Page 26

Faxi - 01.04.1989, Page 26
Eyjólfur Guðjónsson Minningarorð flutt 22. apríl 1989 í Keflavíkurkirkju Hvaö þýöir boðskapur pásk- anna: Kristur er upprisinn? Upp- risa Krists gefur til kynna að lífið hefur eilífðargildi. Hvar sem það er sært, vanhelgað eða réttur manna fyrir borð borinn, taka menn sér stöðu með lífinu með því að játa: Kristur er upprisinn. Þessi orð merkja einnig að dauð- inn er sigraður í hvaða mynd sem hann birtist. Lífið hefursigur, lífið með Guði, það líf sem nær út fyrir gröf og dauða. Kristur lætur eilíft ljós skína inn í dimmu dauðans, rétt eins og vorsólin hrekur burt skammdegismyrkrið. í einum páskasálminum segir á þessa leið: ,,Ég þakka, Jesús, þcr, ad þú hefur gefið mér þá von, sem vetrí breytir í vor, er scelu heitir. Þvi linnir lof mitt eigi á lifsins sigurdegi. Burt synd og hjartasorg! Ég sé Guðs fridarborg og lífsins lindir streyma, þar lífid sjálft á heima. Þvi linnir lof mitt eigi á lifsins sigurdegi". Lof- og þakkargjörð fylgir boð- skap páskanna og það er okkar að taka undir. Öll þráum við þá „nóttlausu voraldar veröld“, sem skáldin yrkja um. Við fögnum henni eftir snjóþungan vetur, fögnum því þegar sólin tekur að verma vang- ann og vekja allt með kossi. Mannlífið fær bjartari svip eftir langdregið skammdegismyrkrið. Mennimir fagna sigursöng lífsins, sem sköpunin öll tekur undir af æ meiri þrótti dag frá degi. Eitt sinn var sagt ,,að það séu engir smámunir að hafa notið sól- skinsins, lifað fögnuð vorsins, hafa elskað, hugsað og fram- kvæmt“. Nei, það eru engir smá- munir að taka undir óð lífsins. Það kann að hljóma sem þver- sögn að standa augliti til auglitis við dauðann þegar þannig horfir. Við fyrstu sýn virðist dauðinn andstæða alls sem lifir. En þegar menn hafa lifað lífið í kærleika, elskað, hugsað og framkvæmt fær dauðinn annan svip. Hann missir brodd sinn þegar mönnum hefur þótt vænt um lífiö. Þá ummyndast hann í þann sigur sem Guö gefur í Jesú Kristi. Sá maður sem hér er kvaddur hinstu kveðju, Eyjólfur Guðjóns- son, fæddist í Kefiavík 17. október árið 1903. Foreldrar hans voru Keflvíkingurinn Guðjón Eyjólfs- son, og kona hans Guðbjörg Svan- laug Amadóttir, sem ættuð var úr Húnavatnssýslum og lést nær hundrað og eins árs gömul áriö 1972. Eyjólfur bar nafn afa síns, sem var sonur Úlafs Eyjólfssonar er fyrst byggði torfbæinn Ná- strönd og kom hingað eftir Skaft- árelda eins og fleiri Skaftfellingar í leit að lífsbjörginni. Synir Ólafs á Náströnd vom þekktir útvegs- bændur í Keflavík á sinni tíð. Eftirlifandi systkini Eyjólfs em Helga og Þorvaldur, en Olafur bróðir hans lést 24. maí 1984. Einn bróðir þeirra systkina dó á unga aldri. Þau hafa öll alið aldur sinn hér í Keflavík. Eyjólfur kynntist konu sinni Guðlaugu Stefánsdóttur árið 1925 á Siglufirði og þann 22. okt. tveimur ámm síðar gengu þau í hjónaband. Guðlaug var dóttir Stefáns Grímssonar, sem ættaður var úr Reykjavík og konu hans Maríu Sveinsdóttur frá Hrauni á Vatnsleysuströnd. Þau bjuggu í Hafnarfirði, en Guðlaug missti föður sinn 13 ára gömul. Hún þurfti því snemma að bjarga sér og dugnaður og vinnusemi ein- kenndi hana alla tíð. Eyjólfur missti konu sína þann 25. sept- ember 1976. Þau hjónin bjuggu lengst af í húsinu Stuðlabergi, nú Norður- túni 8, og síðast að Austurbraut 5 hér í bæ. Eyjólfur sótti sjóinn allt til 1940, en eftir það var hann landformaður hjá Einari Guðberg. Hann var lengst til sjós á m/b Sæfara og m/b Bjama Ólafssyni og var lærður vélstjóri. Að morgni 19. des. 1919 var hann talinn af ásamt þremur skipsfélögum sínum, sem farið höfðu í röður um nóttina. Það vom miklar gleðifregnir þegar kom á daginn aö strandferðaskip- ið Sterling hafi bjargað bæði áhöfn og bát. Eyjólfur var hertur af átökunum við Ægi og þvi í tvenn- um skilningi við hæfi aö kenna hann við Stuölabergið, sem stend- ur af sér öldurót lífsins. Allt að áttræðisaldri vann hann sem afgreiðslumaður í birgðar- skemmum Varnarliðsins á Kefla- vikurflugvelli og sýnir það vel elju hans og dugnað. Böm þeirra hjóna eru í aldurs- röð: Guðjón, endurskoðandi, kvæntur Guðlaugu Ottósdóttur og býr í Reykjavík, María Stefanía, ekkja Þorleifs Sigurðssonar, fyrr- um verkstjóra hjá Skeljungi, bú- sett í Reykjavík, Guðlaugur, um- boðsmaður Bmnabótafélags ís- lands, kvæntur Höllu Gísladöttur og býr hér í Keflavík og loks Sig- urður, framkvæmdastjóri hjá Mjólkurfélaginu, kvæntur Guð- rúnu Jónsdóttur og býr í Reykja- vík. Fjölskyldan er orðin fjöl- menn, bamabömin em 17 talsins og bamabarnabörnin 19. Eyjólfur vann mikið að félags- málum. Hann var í mörg ár ritari Ungmennafélags Keflavíkur og heiðursfélagi. Hann var einn af stofnendum Knattspymufélags Keflavíkur og fyrsti formaður þess. Á árunum 1927 til 1930 var Eyjólfur í stjóm Iæstrarfélags Keflavíkur og umsjónarmaður þess ásamt Ragnari Guðleifssyni. Þeir sáu um bókakaup fyrir félag- ið fyrir það fé sem kom inn vegna útlána. Þeir félagar efndu til skemmtana til þess að auka tekjur til bókakaupa. Fengnir voru þekktir fyrirlesarar og hafður dans á eftir. Sýndir vom leikþætt- ir og hafði Eyjólfur allan veg og vanda af þeirri starfsemi og lék stundum sjálfur. Hann gerði mik- ið af því að handskrifa handrit, enda haföi hann fagra rithönd. Eyjólfur vann einnig að svið- setningu leikrita hjá Ungmenna- félaginu, stúkunni og verkalýðs- félaginu eftir að Félagshús var byggt. Hann var einn af stofnend- um Leikfélags Keflavíkur og heið- ursfélagi þess. Iæiklistin var honum hjartans mál. Hann var einnig ævifélagi í skátafélaginu, styrktarmaður þess og skrifaöi fermingarskeyti fyrir skátana ár- um saman. Á unga aldri stóð hugur hans til mennta, en þess var ekki kostur að feta menntaveginn, þótt hann hefði alla burði til þess. Hann sótti reyndar um lán til þess en fékk, ekki. Löngun hans til mennta kemur best fram í því hve mikill bókamaður hann var. Orð Davíðs Stefánssonar eiga vel viö um hann. „Frá bamæsku var ég bókaormur og bækumar þekkja sína“. Eyjólfur var hringjari Keflavík- urkirkju í áratug frá 1953 til 1963, allt þar til rafmagnsklukkur komu í kirkjuna. Hann tók við því starfi af Guðjóni, föður sínum, sem gegndi því í Ijöldamörg ár. Eyjólfur var lifandi maður með víðtæk áhugamál. Það var ekki hægt að finna á honum ellimörk. Andinn eldist aldrei. Hann fylgd- ist vel með, var lífsglaður og hafði unun af að vera með yngra fólki. 0 142 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.