Faxi - 01.04.1989, Side 33
FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURNESJA
Brautskráning á vorönn 1989
Brautskráningarathöfn á vegum
Fjölbrautaskóla Suðumesja var
haldin í Keflavikurkirkju þann 3.
júní 1989. Tónlistarfólk úr tónlistar-
skóla Njarðvíkur lék fyrir sam-
komugesti undir stjórn Haraldar
Haraldssonar. Skólameistari flutti
yfirlitsræðu og afhenti síðan braut-
skráðum nemendum skírteini. Að
þessu sinni voru 55 nemendur
brautskráðir. Skiptust þeir þannig
milli brauta.
Skiptinemar 4
Flugliðar 18
Skipstjórar 2
Vélstjóri 2. stigs 1
2ja ára bóklegar brautir 4
Af tæknisviði 13
Stúdentar 13
Helga Sigrún Harðardóttir for-
maður nemendafélagsins flutti yfir-
lit um starf NFS.
Sturlaugur Ólafsson annaðist
verðlaunaafhendingu. Flest verö-
laun féllu í hlut Ingu Sigursveins-
dóttur nýstúdents úr Sandgeröi.
Aðrir sem hlutu verðlaun vom
Helen Halldórsdóttir, Þórhallur
Ingason, Helga Sigrún Harðardótt-
ir, Jóhann Þ. Þórisson, Guðbjörg
Leifsdóttir og Sigurbjörg Róberts-
dóttir.
Sparisjóðurinn í Keflavík veitir
árlega bikar til þeirra sem náð hafa
góðum árangri í 4 greinum. Bikarar-
amir skiptust þannig: íslenskubik-
ar Inga Sigursveinsdóttir, hagfræði-
bikar Sigurbjörg Róbertsdóttir,
vélritunarbikar Guðbjörg Leifsdótt-
ir og bókfærslubikarinn Inga Sigur-
sveinsdóttir.
Eftir ræðu skólameistara vom
flutt nokkur ávörp, Kristinn Krist-
jánsson, kennari, kvaddi braut-
skráða og Helen Halldórsdóttir,
nýstúdent, kvaddi kennara og skól-
ann.
Þá flutti Drífa Sigfúsdóttir ávarp
fyrir hönd 10 ára stúdenta og færði
skólanum gjafabréf til sérstakra
bókakaupa til minningar um látna
skólasystur, Elísabetu Leifsdóttur.
Að þessu sinni var skólanum ekki
formlega slitið enda mun verða
kennsla og próf í haust til að bæta
Upp verkfall kennara. Þess vegna
frestaði skólameistari vorönn 1989
til haustsins.
DAGSKRÁ
17. JÚNÍ1989
Kl. 11.15.
17. júní-hlaup. Hlaupið verður umhverfis knattspyrnuvöllinn í
Njarðvík.
Kl. 14.00.
Þjóðhátíðarmessa f Ytri-Njarðvíkurkirkju. Sr. Ólafur Oddur
Jónsson predikar. Formaður þjóðhátíðarnefndar, Ingólfur Bárð-
arson, setur hátíðina í kirkjunni áður en guðsþjónusta hefst.
Kl. 14.45.
Skrúðganga frá kirkju að hátíðarsvæði við Stapa.
Hátíðarsvæðið við Stapa:
Kl. 15.10.
Lúðrasveitin leikur.
Kynnir verður Lára Guðmundsdóttir, kennari.
Avarp Odds Einarssonar, bæjarstjóra.
Avarp fulltrúa gesta frá vinarbænum Fitjum í Noregi.
Þjóðhátíðarræða flutt af Böðvari Jónssyni.
Ávarp Fjallkonu.
Kl. 15.30.
Kvenfélag Njarðvíkur sér um kaffiveitingar (hlaðborð) í Stapa frá
kl. 15.30.
Skemmtidagskrá:
Valgeir Guðjónsson sér um söng og grín fyrir alla aldurshópa.
Kökukeppni og kökuuppboð í umsjón skáta.
Verðlaunaafhending vegna 17. júní hlaupsins.
Á vegum skátafélagsins Víkverja á
hátíðarsvæðinu:
Bílasýning, blómasýning, sýning á skipulagi Njarðvíkur og ná-
grennis, starfsíþróttir, ,,þrautabraut“, óvæntar uppákomur
ýmiss konar.
Fjölskyldudansleikur í Stapa:
Kl. 20.00-24.00.
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar leikur fyrir dansi og verður
með leiki og grín fyrir börn á öllum aldri. Einar Júlíusson
söngvari kemur fram.
Þjóðhátíðardansleikur:
Hljómsveit B.G. leikur fyrir dansi.
FAXI 149