Faxi - 01.12.2000, Blaðsíða 10
FAXIJÓLABLAÐ 2000
Séra Björn skráir
æviþætti Olafs biskups
Fjölskyldan. Bræðumir Ólafur og Helgi standa að baki foreldra sinna, Sigríðar Ágústsdóttur og Skúla Oddleifsson-
ar. Móeiður situr við hlið móður þeirra og Ragnheiður við hlið föðurins.
Út er komin bókin
Olafur biskup, ævi-
þættir. Bókin er skráð
af séra Birni Jónssyni,
fyrrverandi sóknar-
presti Keflvíkinga. I
bókinni rekur Ólafur
lífshlaup sem hefur
verið óvenjulegt fyrir
margra hluta sakir.
Sérstaka athygli hlýtur
að vekja frásagnir af
ýmsum átökum innan
kirkjunnar í starfstíð
Ólafs. Bókin er gefin
út af Almennu útgáf-
unni, Stangarhyl 4 í
Reykjavík og prentuð í
Odda. Hún 400 blað-
síður og það er Æskan
ehf. sem sér um dreif-
ingu hennar.
HH.
Faxi birtir hér úrdrátt
úr bókinni.
ÚR HÁSKÓLA KEFLAVÍKUR í
VERSLUNARSKÓLANN
Eitt sinn sagði Ragnheiður systir mín
mér frá því, að hún hefði leikið undir
söng Kvennakórs Suðumesja við setn-
ingu Fjölbrautaskólans í Keflavík.
Enginn þarf að minna þann á, sem með
fæðingar, dauða og önnur atvik lífsins
hefur að gera, að ekkert stendur í stað.
En einhvem veginn var sem í sjón-
hendingu tjalddúki tímans svift frá,
svo að ég var fluttur til baka um tæpa
þrjá áratugi, til þess tíma er ég varað
ganga í æðstu menntastofnun, sem
Keflavík hýsti þá. Það var á stríðsámn-
um og margt hermanna, sem mælti á
ensku, enda Bandaríkjamenn á götum
úti og í kvikmyndahúsinu, þegar sýn-
ingar vom. Eitt sinn vorum við að
koma heim úr skóla að kvöldi og mætt-
um slíkum hópi. Þá sagði einn af okk-
ur og vildi gera sig breiðan: „We go to
Keflavik Highschool." Átti þar með
við, að það væri nú hvorki meira né
minna en háskóli Keflvíkinga, sem
þessi hópur sótti. En slík var nú mála-
kunnáttan, að hann ruglaði saman
„high school" sem þeir Ameríkanar
kalla gagnfræðaskóla sína, og „uni-
versity" sem er nafnið yfir æðstu
menntastofnun hvers lands. Hið
skemmtilega við þetta er þó það, þegar
rifjað er upp eftir svona langan tíma, að
pilturinn hafði af fátækt málakunnáttu
sinnar nokkuð rétt fyrir sér. Háskóli
hefði stofnunin aldrei veríð kölluð, ekki
einu sinni gagnfræðaskóli, en samt var
hún merkust slíkra menntasetra á Suð-
umesjum öllum á þeim tíma. En þetta
var kvöldskóli, sem séra Eiríkur
Brynjólfsson á Útskálum stóð fyrir af
slíkum krafti og fádæma dugnaði að
eftir á sækir furðu að þeim, sem hugsar
um allt það, sem hann þurfti á sig að
leggja. Vitanlega kom það fyrir, oftar
en einu sinni, að hann kom of seint í
kennslustundir. Enda er meira en rétt
spölkom frá Útskálum og inn í Kefia-
vík, einir 10 km, og ekki vom áætlun-
arferðir oft á dag eins og nú tíðkast. Og
það hefði þótt saga til næsta bæjar, ef
sóknarpresturinn hefði átt bíl. En reið-
hjólið sitt notaði hann óspart og steig
það af ákafa þess, sem veit að tíminn er
dýrmætur. En stundum kom séra Ei-
ríkur í tíma til okkar og gat varla mælt.
Ekki vegna þeirrar þreytu, sem frá lík-
amlegri áreynslu stafar, heldur vegna
þess að hann var mæddur af öðmm
ástæðum. Hann var gæddur viðkvæmri
lund, og átti ekki gott með að sætta sig
viðþað, sem honum fannst óréttlátt eða
jafnvel móðgandi. Og enn finnst mér
ég geti heyrt tóninn, sem hækkaði tölu-
vert, þegar þannig stóð á, er hann var
að lýsa því fyrir okkur, ef einhver ók
fram úr honum án þess að taka hann
uppí eða í það minnsta að bjóða honum
far. Og bæri svo við, að þetta væri ein-
hver kunnugur, að ekki sé talað um, ef
það var fyrrverandi fermingarsonur,
sem setti kíkinn fyrir blinda augað,
þegar hann ók fram úr prestinum sín-
um, þá var eins og heimsins mesta
sorg hefði blandast við ósvífni allra
tíma. Og lái hver sem vill séra Eiríki
fyrir það að finnast slíkt vanþakklæti,
svo mikið lagði hann á sig og ekki fyr-
ir fjárhagslegan ábata. Ekkert okkar
greiddi skólagjald eða neitt slíkt. Hann
vann af hugsjón og stóð fyrir rekstri
þessarar æðstu menntastofnunar Suð-
umesja af köllun eldhugans og knúinn
vissu þess, sem veit, að bókvitið er
stundum hægt að láta í askana.
Væri það einhverjum verðugt verk-
efni að skrifa um skóla séra Eiríks
Brynjólfssonar, þótt ekki verði það gert
hér. Og ekki minnist ég þess, að skóla-
setning hans haii verið heiðruð með
58 FAXI