Faxi - 01.12.2000, Síða 21
FAXI JÍIIiAlllill) 21)011
Síðast liðin tvö ár hefur verið unn-
ið að mjög merku framtaki í
Reykjanesbæ og það sá dagsins
ljós þann 2. september s.l. á svonefndri
Ljósanótt. Það sem hér um ræðir er að
búið er að lýsa upp Bergið allt frá Smá-
bátahöfninni í Grófinni og fram á
Brennunípu. Markaðs- og atvinnu-
málanefnd Reykjanesbæjar gekkst fyr-
ir dagskrá sem fram fór á mörgum stöð-
um frá morgni til kvölds. Þar var um að
ræða listsýningar, íþróttaviðburði, tón-
listaratriði og bílasýningu svo eitthvað
sé nefnt. Bömin fóru ekki á mis við
skemmtunina því víða um bæinn var
þeim boðið til leikja. Um kvöldið fór
fram sannkallað „Grand finale" við
Smábátahöfnina þar sem lúðrasveit lék
við Duushúsin og Einar Öm Einarsson,
Guðmundur „Brói“ Sigurðsson og Ámi
Johnsen stýrðu Bryggjusöng frá flot-
biyggjunni svo undir tók í bænum. Að
loknum ávörpum þeirra Steinþór Jóns-
sonar og Skúla Skúlasonar var kveikt á
lýsingunni kl. 22:00. Ljósahátíðinni
lauk síðan með mikilli llugeldasýningu.
Öhætt er að segja að þessi fyrsta Ljósa-
nótt hafi tekist vel, veðurguðirnir sýndu
á sér betri hliðina og bæjarbúar voru
mættir í þúsunda tali.
En hver er sagan á bak við lýsingu
Bergsins? Á engan er hallað þó sagt sé
að Steinþór Jónsson, hótelstjóri Hótels
Keflavík, sé maðurinn á bak við þessa
framkvæind. Þótt hugmyndin sé
kannski ekki alveg ný af nálum þá má
þakka honum að hún er nú komin í
framkvæmd. Það var á árinu 1998
áhugi vaknaði hjá Steinþóri að ýta þess-
ari hugmynd úr vör. Hann fékk fjöl-
marga í lið með sér og nteð sameigin-
legu átaki Markaðs- og atvinnu-
málanefnd Reykjanesbæjar, Hitaveitu
Suðiunesja, Hafnarsamlagi Suðumesja
og Menningarborg Reykjavík 2000 og
fjölmargra annaira fyrirtækja tókst að
tryggja tjármagns til verksins en kostn-
aðaráætlun hljóðaði upp á einar fimm
milljónir.
Hönnun verksins fór fram sumarö
1999 og var í höndum Steinþórs sem
fékk til liðs við sig tæknideild iGuzzini
á ltalíu og umboðsmanni þeirra á Is-
landi GH Heildverslun. Þeir sem sáu
um uppsetningu lampanna vom starfs-
menn Nesrafs en Steinsteypusögun
S.H. kom festingum fyrir í bergið. Fest-
ingamar vom smíðaðar af Vélaverk-
stæði Sverre Stengrimsen en Hjörleifur
Stefánsson hjá Nesraf hafði hönd í
bagga með endurhönnun þeina því
þegar til kastanna kom gekk ekki upp
sú hugmynd sem hið ítalska fyrirtæki
byggði á. Mikil áhersla var lögð á að
forðast nátlúruspjöll og var t.d. allt efni
borið á höndum út Bergið. Ekki er fjar-
ri lagi að unt einn kflómetri af rafleiðsl-
um hafi verið notaður. Var fyllsta öiygg-
is gætt við vinnslu verksins enda um
frekar óvenjulegar aðstæður að ræða. Vel
hefur til tekist eins og t.d. eftirfarandi
umsögn lýsir en hana má lesa í grein-
argerð Menningarborgar Reykjavíkur
2000: „Lýsing Bergsins er fagurfræði-
legt verk sem ekki á sinn líka á Is-
landi.“
Fjámiögnun veksins var m.a. með
þeim hætti að eftirtalin fyrirtæki
kostuði einn Ijóskastara hvert: Hótel
Kellavík, Sparisjóðurinn í Keflavík, ís-
landsbanki hf, BYKO, Landsbanki ís-
lands hf, Grágás, Landssíminn, Kaffi
Duus, Ráin, Víkurfréttir, Gallery fórö-
un, Olís, Ný-ung, Húsasmiðjan, SBK,
Vatsnnes ehf - SS Bflaleiga, Thenno
Plus, Sjóvá-Almenna, Nesraf, Srein-
steypusögun S.H., Vélaverkstæði
Svene Stengrimsen, GH ljós í Garða-
bæ, Eimskip - Skipaafgreiðsla Suður-
nesja, Ofitasmiðja Suðumesja. Þau fyr-
irtæki sem áður vom nefnd hér að frain-
an lögðu einnig fram umtalsvert fé
ásamt Reykjanesbæ.
Nýlega var þremur kösturum bætt
við lýsinguna og vom tveir þeirra upp í
Grófinni en einn yst út á Brennunípu. í
stuttu spjalli við Faxa lýsti Steinþór sig
mjög ánægðan rneð útkomuna. Telur
hann að með tilkomu lýsingarinnar fái
bæjarbúar og gestir þeiira betur að
njóta þeirrar fegurðar sem Bergið býr
yfir. Einnig ræddi liann þá hugmyndað
Ljósanótt yrði árlegur viðburður í bæjar-
lífinu en hvatti jafnframt til þess að með
nokkurra ára millibili tækju bæjarbúar
sig til og efndu til átaks sem setti svip
á bæinn til frambúðar. Hér með er heils-
hugar tekið undir hugmyndir Steinþórs
Jónssonar um leið og honum og hans
samstarfsfólki er þakkað merkt fram-
tak.
HH.
FAXI 69