Faxi - 01.12.2000, Qupperneq 28
wwwwwwbwwbwwww
Nj arðvíkurpres takall
í tileíhi Kristnitökuafmælis
Njarðvíkurprestakall er yngsta prestakall á Suðurnesjum, stoínað 1975
Fermingarbörn vorið 2(KK). Til vinstri sést ljósberinn, gjöf Gunnars Þórar-
inssonar og Steinunnar Sighvatsdóttur.
ó fomar heimildir skorti er næsta
víst, að kirkjur hafa til foma ver-
ið í Njarðvíkum. Það sem m.a.
rennir stoðum undir það álit em Kirkju-
víkumar tvær, sú norðan Klappamefs og
hin innri við Kópu.
Heimildir em um að kirkja stóð í
Njarðvíkum á miðöldum. Eftir að hún var
niðurlögð áttu Njaiðvíkingar óhentuga
kirkjusókn að Kirkjuvogi í Höfnum.
Þannig stóðu kirkjumál Njarðvíkinga
fram um 1675 er Jón Halldórsson, bóndi
í Innri-Njarðvík, reisti kirkju á jörð sinni
og þar hefur kirkja staðið óslitið síðan.
Fyrst í stað var um heimakirkju að
ræða en 1701 vom staðnum veitt full rétt-
indi er grafreitur var þar geiður.
Kirkjan í Innri-Njarðvík var á þessum
tíma annexía frá Hvalsnesi allt til 1811.
Þá var Hvalsnesprestakall lagt niður og
brauðið lagt til Utskála nema Innri-Njaið-
vík, sem eftir það var þjónað frá Kálfa-
tjöm, til 1917, að Innri-Njarðvíkursókn
sameinaðist Keflavíkursókn og var þá
þjónað frá Utskálum til 1952. Innri-
Njarðvíkursókn var aftur upp tekin 1944
er steinkirkjan sem þar stendur og staðið
hefur frá 1886 var lagfæið og endurvígð,
en hún var að heita má aflögð frá 1917.
Innri-Njarðvíkursókn var svo í Keflavík-
urprestakalli frá stofnun þess 1952 og til
1975 er Njarðvíkurprestakall var stofnað.
Séra Bjöm Jónsson þjónaði Keflavíkur-
prestakalli umrætt tímabil.
íbúar íYtri-Njarðvík stofnuðu sérstaka
sókn árið 1968 en þeir höfðu verið í
Keflavíkursókn frá stofnun hennar, er
skilist var við Útskálasókn, árið 1906.
Fyrsti prestur Njarðvíkurprestakalls
var séra Páll Þórðarson. Hann lést aðeins
35 ára gamall árið 1978. Séra Þorvaldur
Karl Helgason þjónaði 1978-1992. Þá
tók við þjónustunni núverandi sóknar-
prestur séra Baldur Rafn Sigurðsson.
NJARÐVÍKURKIRKJA
Njarðvíkurkirkja var vígð af séra Þór-
ami Böðvarssyni, 18. júlí 1886. Hún er
hlaðin úr höggnu grjóti, sem tekið var úr
fjömnni og heiðinni, flutt á sleðum heim
og höggvið þar. Verkinu stjómaði Magn-
ús Magnússon, múrari í Miðhúsum í
Gaiði, sem einnig var yfirsmiður við
Hvalsneskirkju. Þak var úr timbri, hellu-
|agt.
Asbjöm Olafsson bóndi og hrepp-
stjóri í Innri-Njarðvík stóð fyrir bygging-
unni.
Á ámnum 1917 til 1944 var kirkjan
lítt notuð sem sóknarkirkja og sóttu
Njarðvíkingar kirkju til Keflavíkur. Árö
1944 var kirkjan lagfærð. Altaristafla
kirkjunnar er eftir Magnús Á. Ámason.
Hún var gefin og sett upp á endurvígslu-
daginn.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA
Kirkjan var vígð af herra Sigurbimi
Einarssyni biskupi, á sumardaginn fyrs-
ta, 19. aprfl 1979, tæpum áratug eftir að
fyrsta skóflustunga var tekin.
Kirkjan er teiknuð af arkitektunum
Ormari Þór Guðmundssyni og Örnólfi
Hall.
Kirkjuskipið rúmar um 230 manns í
sæti og safnaðarsalur, sem opnanlegur er
inn í kirkjuskipið, rúmar um 100 manns.
Frá því að Ytri-Njarðvíkursókn var stofn-
uð, 1968, og þar til kirkjan var vígð fóm
messur safnaðarins fram í samkomuhús-
inu Stapa.
SÓKNARNEFND INNRI-
NJARÐVÍKURSÓKNAR
Sóknarnefnd Innri-Njarðvíkursóknar
skipa, formaður Jónína Margrét Her-
mannsdóttir, gjaldkeri Rósa Björk Guð-
mundsdóttir og ritari Þórlína Jóna Ólafs-
dóttir. Varamenn eru Kristjana Gísla-
dóttir og Jens Karl ísfjörð sem jafnframt
er safnaðarfulltrúi.
HÚSSTJÓRN 0G
KIRKJUGARÐSSTJÓRN
Hússtjóm Safnaðarheimils Njarðvík-
urkirkju skipa Sigrún Óladóttir, Elín
Pálsdóttir, Gylfi A. Pálsson, Þórir Inga-
son, Jónína Hermannsdóttir formaður
sóknamefndar og sóknarpresturinn sr.
Baldur Rafn Sigurðsson. Sigrún Óla-
dóttir og dóttir hennar, Elín Pálsdóttir,
em umsjónarmenn safnaðarheimilisins.
Kirkjugarðsstjóm skipa: formaður er
Leifur A. ísaksson, ritari Jónína Her-
mannsdóttir og gjaldkeri er Ólafur Guð-
mundsson. Sameiginlegur kirkjugaiður
Njarðvíkursókna er við kirkjuna í Innri-
Njaiðvík
76 FAXI