Faxi - 01.12.2000, Page 30
ótt jarðskjálftar í norðvestanveiðu
Tyrklandi, nokkrum mánuðum á
undan Suðurlandsskjálftunum, hafi
hrært marga til meðaumkunar, þá hafa Is-
lendingar lengi haft illan bifur á Tyrkjum.
Það fyrsta sem kemur upp í hugann hjá
mörgum, þegar minnst er á landið, er bar-
átta Sophiu Hansen við Halim A1 og
Tyrkjaránið fyrir nokkrum öldum. Á hinn
bóginn er vert að hafa í huga að Halim A1
er alls ekki dæmigerður Tyrki, enda hefur
komið í ljós að Sophia Hansen hefur sam-
úð tyrknesku þjóðarinnar sem kaus hana
konu ársins á sínum tíma. Það voru held-
ur ekki Tyrkir sem stóðu að Tyrkjaráninu
svokallaða, heldur ribbaldar frá Alsír sem
var nýlenda Tyrkja fyrr á öldum. Á hinn
bóginn eru Tyrkir upp til hópa vingjam-
legt, hjálpsamt og gestrisið fólk.
Ankaraborg stendur á mörgum hæðum og í sum hveríin er ekki hægt að
komast nema gangandi eða ríðandi á asna. Ljósm. Fjóla Olafsdóttir.
Evrópuland í Asíu
Tyrkland, sem er heldur stærra en
Bretlandseyjar, Holland, Belgía, Lúx-
embúrg og Þýskaland til samans, er
eina Evrópulandið í Asíu. Að vísu er
örlítill hluti þess í Evrópu, svo sem
hluti þeirrar alræmdu borgar Istanbul
sem hefur heitið ýmsum nöfnum í ald-
anna rás. Víkingar kölluðu hana
Miklagaið, Rómveijar Býsantíum og
seinna breyttist nafn hennar í Kon-
stantínópel. Múslímar gáfu henni að
lokum sitt núverandi nafn. Istanbul er
stærsta borg Tyrklands, enda var hún
lengi höfuðborg landsins. En þegar
Mustafa Kemal Atatiirk steypti Týrkja-
soldáni, árið 1923, valdi hann Ankara
sem höfuðborg.
Tyrkir líta á Ataturk sem fóður Tyrk-
lands, enda hefur sennilega enginn
einn maður breytt sögu lands síns á
eins afgerandi hátt, amk. á tuttugustu
öldinni. Meðal þess sem hann kom í
verk var að banna eins mikið af arab-
ískum áhrifum og hann gat og innleiða
vestrænan hugsunarhátt í staðinn.
Hann afnam arabískt letur og kom á
evrópsku stafrófi. Hann bannaði karl-
mönnum að ganga með túrbana og
lagði til að konur hættu að ganga með
blæju fyrir andlitinu, enda fyrirskipaði
hann þjóðinni að líta á karla og konur
sem jafn réttháar manneskjur og harð-
bannaði körlum að kúga konur. Hann
lagði til að allar manneskjur hefðu
sömu laun fyrir samskonar vinnu og
lýsti yfir trúfrelsi í landinu. Svo sagði
hann þegnum sínum að Týrkir ættu
ekki að sækjast efúr því að ráða yfir öðr-
um löndum, heldur einbeita sér að því
að bæta sitt eigið land - og hann geiði
Ankara að höfuðborg þar sem hún
stendur inni í miðju landinu og er því
miðsvæðis fyrir alla þegnana. Atattirk
andaðist árið 1938, aðeins 57 ára gam-
all, en í Tyrklandi nútímans eru vest-
ræn gildi enn í heiðri höfð, enda eru
TyrkirmeðlimiríNATO, og Evrópuráðinu.
78 FAXI