Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.2004, Side 9

Faxi - 01.12.2004, Side 9
hópi þeirra var þá aðeins Karvel Ög- mundsson eftir á lífi. Viðskipti Grindvík- inga höfðu farið vaxandi en samdráttur annars staðar vegna minni útgerðar. Á þessum fundi var samþykkt að fjölga stjórnarmönnum úr 3 í 5 til þess að bæta fulltrúum frá Grindavík í stjórnina. Eirík- ur Tómasson frá Þorbirni hf. og Pétur Pálsson frá Vísi hf. voru kosnir. Ólafur Björnsson varð áfram formaður og Óskar Þórhallsson varaformaður. Á aðalfundi þann 5. júní 1991 var þeirra Jóns H. Krist- jánssonar, Ingólfs R. Halldórssonar og Magnúsar Ingimundarsonar minnst en þeir höfðu látist á liðnu ári. Benedikt Jónsson, sem verið hafði í stjórn frá 1966, baðst undan endurkjöri þar sem hann starfaði ekki lengur við útgerð. Formaður og framkvæmdastjóri þökkuðu Benedikti mikil og góð störf fyrir OSK. Hilmar Magnússon kom í stjórnina fyrir Benedikt og Pétur Pálsson varð ritari. Fram kom að reksturinn í Helguvík hafði gengið vel þá f jóra mánuði af árinu 1990 sem OSH sá um reksturinn. Endurskoðunarskrifstofa Sigurðar Stefánssonar var búin að vinna við að finna út eignarhluti félagsmanna í eigum Samlagsins, framreiknað frá stofn- un féiagsins og hafði að mestu lokið því starfi. Raddir um að breyta félagsforminu komu æ oftar fram. Á fundinum bar for- maður upp svohljóðandi tillögu: „Aðal- fundur OSK, haldinn 5. júní 1991, sam- þykkir að fela stjórninni að vinna úr end- urmati á eign félagsmanna í samráði við Endurskoðunarskrifstofu Sigurðar Stef- ánssonar hf. og leggja síðan tillögur um framtíðarskipan félagsins fyrir næsta aðal- fund.“ Tillagan var samþykkt með þorra atkvæða. Á stjórnarfundi 4. nóv. 1991 kynnti framkvstjóri niðurstöður endur- skoðuninnar á eignarhlutum í OSK sam- kvæmt stofnfjáreignum frá upphafi. Eng- ar athugasemdir voru gerðar við niður- stöðurnar og samþykkt að senda hverjum félagsmanni yfirlit yfir sína stöðu. Á aðalfundi fyrir árið 1991, sem haldinn var á Glóðinni 10. maí 1992, skýrði Sigurð- ur Stefánsson fyrir fundarmönnum þá vinnu sem leiddi til þeirrar niðurstöðu sem eignarhlutirnir voru byggðir á. Engar athugasemdir voru gerðar við útkomu Sig- urðar. Fram kom að 154 eignarhlutir væru í OSK. Margir þeirra væru í eigu dánar- búa og skiptust í marga hluta. Talsvert var um að menn höfðu tekið út stofnfjáreign sína en áfram áttu þeir hlut í eignum fé- lagsins samkvæmt bréfum sem afhent voru við úttekt á stofnsjóði. Sigurður taldi að forsenda fyrir breytingu á félaginu væri að breyta lögum félagsins áður en til þess kæmi. Miklar umræður urðu um mál- iö. Formaður bar upp svohljóðandi tillögu: „Aðalfundur OSK, haldinn á Glóðinni 19. maí 1992, samþykkir að fela stjórninni að Ólafur Baldur Ólafsson var síðasti formaður OSK. láta endurskoða lög félagsins fyrir fram- haldsaðalfund sem haldinn yrði næstkom- andi haust.“ Þessi tillaga var samþykkt samhljóða. Fram kom á fundinum að lokið hafði verið við byggingu þriðju hæðarinn- ar áVíkurbraut 13 og væri allt það hús- næði komið í leigu. Þann 27. október var aðalfundinum framhaldið. Þar skýrði Sig- Stjóm Olíufélagsins vildi hafa hönd í bagga með þvi hvar bréfin lentu og eitthvað var talað um að aðstoða „vinsamleg“ jyr- irtœki við kaup á bréfun- um. Þegar kom að því að ganga frá málinu reynd- ist formaðurinn vanhœf- ur því hann var lika for- maður stjómar SIS. urður Stefánsson þær lagabreytingar sem gera þyrfti vegna fyrirhugaðra breytinga á félagsforminu. Formaður lagði svo fram tillögu um breytingarnar. Eftir nokkrar umræður voru þær samþykktar með öll- um greiddum atkvæðum gegn einu. Fyrir áramótin urðu miklar sviptingar í Olíufé- laginu hf. Landsbankinn, sem hafði verið með hlutabréf SÍS í Olíufélaginu 32% í sinni vörslu, gerði kröfu um að selja hlutabréfin til þess að grynnka á skuld SÍS við bankann. Stjórn Olíufélagsins vildi hafa hönd í bagga með því hvar bréf- in lentu og eitthvað var talað um að að- stoða „vinsamleg“ fyrirtæki við kaup á bréfunum. Þegar kom að því að ganga frá málinu reyndist formaðurinn vanhæfur því hann var líka formaður stjórnar SÍS. Karvel Ögmundsson var þá í Bandaríkjun- um og komu því tveir varamenn í stjórn- ina, þeir Ólafur Björnsson og Haraldur Gíslason frá Vestmannaeyjum. Kristján Loftsson varaformaður tók við formennsk- unni.Við nánari skoðun lá fyrir að fjár- hagsstaða Olíufélagsins hf. var svo sterk að það gat keypt bréfin og afskrifað þau en til þess þurfti leyfi viðskiptaráðherra. Það fékkst vafningalaust og félagið keypti sjálft þessi 32 % og afskrifaði þau. Að þessu gerðu var OSK orðinn stærsti eig- andinn í Olífélaginu hf. með 13,1%. Mis- vel líkaði mönnum það. Aðalfundur fyrir áriðl992 var haldinn á Glóðinni 25. maí 1993. í skýrslu formanns kom m.a. fram, að þrátt fyrir að afskrifa hlutafé SÍS, greiddi Olíufélagið 10% arð af hlutafé og 10% í jöfnunarbréf eins og undanfarin ár. Hlutur OSK í Olíufélaginu var metinn á um kr. 75 milljónir. Rekstur- inn í Helguvík hafði gengið mjög vel og OSH fengið viðurkenningu frá eftirliti flota Bandaríkjanna fyrir best reknu olíu- stöð af öllum þeim olíustöðvum sem þeir ráku vítt og breitt um heiminn. Lokið var við að ganga frá lóðinni við skemmur sam- lagsins við Vitastíg og einn olíubíll hafði verið endurnýjaður. Formaður lauk máli sínu með þessum orðum: „Eg hefi nú ver- ið formaður í þessum félagsskap síðan árið 1967. Miklar sviptingar erum við bún- ir að fara í gegnum.Viðskiptin hröpuðu um helming með tilkomu hitaveitunnar. Aftur hafa þau hrapað vegna samdráttar flotans en fara nú vaxandi á ný. Ég leyfi mér að fullyrða, aö aldrei hefir OSK verið sterkara en nú. Ég er nú hættur útgerð og gef því ekki lengur kost á mér til setu í stjórn. Það mál sem ég var öðru fremur kosinn til þess að leysa er nú loksins í höfn en það var að koma því á hreint hvað hver ætti raunverulega í Olíusamlaginu. Ég er innilega þakklátur ykkur félögunum og öllu því ágæta fólki sem ég hefi starfað með hér öll þessi ár. Síðast en ekki síst færi ég framkvæmdastjóranum, og þeim sem starfað hafa með mér í stjórn, alúðar- þakkir fyrir frábært samstarf í einu og öllu frá fyrstu tíð. Einhugur hefir verið um að láta hagsmuni Samlagsins sitja í fyrir- rúmi og ég vona að svo verði í framtíðinni. Olíusamlagið á að vera fyrir þá sem eru starfandi hverju sinni. Ég óska Olíusam- lagi Keflavíkur velgengni og alls hins besta um ókomin ár.“ Þorsteinn Erlings- FAXI 9

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.