Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2004, Blaðsíða 13

Faxi - 01.12.2004, Blaðsíða 13
Á árshátíð starfsmanna Olíufélagsins 1990. Nýir stjómarmenn frá vinstri: Pétur Pálsson, Eirikur Tómasson ásamt Guðjóni Ólafssyni framkvœmdastjóra og Ólafi Bjömssyni formanni með eiginkonum sínum. una og hún samþykkt með öllum greidd- um atkvæðum gegn atkvæði Guðmundar Guðmundssonar. Tillaga stjórnar um menn í skilanefnd var samþykkt. Strax að loknum fundinum komu stjórn og varastjórn saman ásamt Guðjóni fram- kvstjóra, Pétri Guðmundssyni og Jónasi endurskoðenda. Gengið var frá stofnun 01- íusamlags Keflavíkur og nágr. ehf. Hlutafé var ákveðið kr. 500 þús. og heimild til þess að hækka það í kr. 660 milljónir. Skila- nefndin hélt tvo fundi ásamt fram- kvæmdastjóm. Á fyrri fundinum var farið yfir hlutdeildarlistann sem að mestu var byggður á gögnum sem Ólafur Þorsteins- son fyrrverandi framkvstjóri hafði unnið og Sigurður Stefánsson endurskoðndi byggt sína framreikninga á og miðaðist við viðskipti manna frá upphafi. Jónas Guðbjörnsson endurskoðandi útskýrði hvernig hlutdeildarlistinn myndi líta út. Hann sagði að hlutaféð yrði kr. 541 millj- ónir. Skilanefnd ræddi listann og var sam- mála um að fela Jónasi að ganga endan- lega frá honum. Einnig var samþykkt að þeir Guðjón framkvstjóri og Jónas endur- skoðandi fæm á fund Péturs Guðmunds- sonar hrl. til samráðs um lokafundinn. Á fundi 12. maí var gengið frá undirbún- ingi fyrir lokafund OSK. Hann var svo haldinn á Glóðinni 27. maí. Ólafur B. Ólafsson formaður setti ftmdinn og gerði tillögu um að Pétur Guðmundsson, sem hann hafði með sér á fundinn, tæki að sér fundarstjórn og var það samþykkt. Pétur lýsti fundinn löglegan þar sem mætt væri fyrir 81.19% atkvæða og gaf formanni orð- Guðmundur Guðmundsson mótmœlti og hótaði málsókn. Formaður benti honum á að mótstaða hans hafi þegar kostað OSK um 3 milljónir kr. án þess að skila honum nokkru. ið. Formaður fór yfir sölu OSK árið 1997, reksturinn í Helguvík og Olíufélagsins. Alls staðar var afkoman góð. Hann fór síð- an yfir sögu OSK í stuttu máli, þakkaði starfsfólki góð störf og viðskiptaaðilum samstarfið á liðnum árum. Næst fór Jónas Guðbj. endurskoðandi yfir reikninga fé- lagsins fyrir árið 1997. Hagnaður ársins varð kr. 1.463 þús. þegar gert hafði verið ráð fyrir afslætti og vöxtum af stofnfé. Umræður urðu ekki aðrar en þær að Guð- mundur Guðmundsson setti út á flest, einltum þó afslættina. Reikningarnir voru samþykktir með öllum atkvæðum gegn einu. Tillaga um að veita kr. 18.358.846 í afslætti og 8% vexti af stofnsjóði var sam- þykkt með sama hætti. Næst gerði for- maður grein fyrir vinnu skilanefndar. Guð- mundur Guðmtmdsson mótmælti og hót- aði málsókn. Formaður benti honum á að mótstaða hans hafi þegar kostað OSK um 3 milljónir kr. án þess að skila honum nokkru. Fundarstjóri sagði vinnu skila- nefndar í fyllsta samræmi við lög og regl- ur. Hann lýsti eftir athugasemdum. Engar bárust. Hann sagði þá frumvarpið sam- þykkt. Formaður fagnaði nýju félagi og sleit fundi. Aðeins einn fundur var haldinn í Olíu- samlagi Keflavíkur og nágr. ehf. Þar lá fyr- ir tilboð frá Olíufélaginu hf. um hagstæð skipti á hlutabréfum í OSK ehf. fyrir hlutabréf í Olíufélaginu hf. Sjálfsagt þótti að taka boðinu. Þetta uröu góð skipti því bréf í Olíufélaginu hækkuðu ört næstu mánuði. Óhætt er að fullyrða að það var mikið lán fyrir Olíusamlagið að Ólafm- Baldur Ólafsson skyldi veljast til þess að stýra málum þess í höfn. Ólafur var skarp- gáfaður, hafði mikla reynslu í félagsmál- um og naut trausts og virðingar allra sem hann átti samskipti við. Á sextíu ára ferli sínum studdi Olíusam- lagið mörg góð málefni, íþróttafélög, sjúkrahúsið og samtök fatlaðra, svo eitt- hvað sé nefnt. Tekið saman í nóvember 2004 Ólafiir Bjömsson. FAXI 13

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.