Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.2004, Side 21

Faxi - 01.12.2004, Side 21
þensla á viðskipta- og fj ármálamarkaðinum hafi virkilega engin áhrif til vaxandi verð- bólgu og verri lífskjara. Getur það verið að það séu bara lágu launin sem vega svona þungt á efnahagslífið? Spyr sá sem ekki veit. Okkur er sagt að ríkið og sveitafé- lögin standi ekki undir kostnaði við þá þjón- ustu sem þeim er skylt að veita. Svo virðist sem peningarnir leiti frekar í digra einkasjóði en í sameiginlegan sjóð allra landsmanna. Ég hef nokkrar áhyggjur af þessarri þróun því ég tel að lítið samfélag eins og Island - sem gæti verið og ætti að vera góssenland allra íbúanna 300.000 - þoli illa þá spennu sem skapast viö mikla mis- skiptingu auðs. Franska byltingin var gerð á sín- um tíma þegar almúganum ofbauð hóglífi yfirstéttarinnar íVersölum. Við skulum ekki gleyma því. Mér finnst ögn undarleg umræðan um samræmd próf í 10. bekk grunnskólans sem leggja á fyrir í maí. Það er ljóst að nemendur hafa misst tæpar 8 viltur úr kennslu og að sá tími verður ekki unninn upp. I Ijósi þess skil ég ekki þá undarlegu ráðstöfun menntamálaráðuneytisins að fresta prófunum um viku. Úr því sem komið er skiptir vika engu máli til eða frá. Ég sem foreldri barns í 10. bekk mun ekki sætta mig við að kennt verði á lögboðnum frídögum til að reyna að vinna upp glatað- an kennslutíma. Nemendur eru í skólan- um tæpa 40 tíma á viku, flestir eru í íþróttum eða öðru tómstundastarfi og það er beinlínis vinnuþrælkun, félagslega og fjölskyldulega fjandsamlegt að lengja vinnuviku þeirra. Kennsla og nám eru engin akkorðsvinna. Þaö er ekki unnt að gera eins og iðnaðarmennirnir sem leggja nótt við dag á síðasta sprettinum til að húsnæðið verði fullklárað á réttum tíma. É; á líka bágt með að skilja hvers vegna eyða á miklum fjármunum í að leggja fyr- ir samræmd próf í 10. bekk að þessu sinni þegar vitað er fyrirfram að þau eru ekki marktæk. Þau geta ekki verið marktæk ef prófa á nemendur í efni sem þeim hefur aldrei verið kennt. Hvers eiga nemendur að gjalda í þessu máli? Þeir hafa þegar misst úr nær alla haustönnina. Mér fynd- ist eðlilegra og miklu sanngjarnara að að- laga prófin að því efni sem farið verður yfir í 10. bekk þennan veturinn og leyfa nemendum að vinna upp glataða kennslu í framhaldsskólanum. Við verðum að líta á skólastigin sem samfellu. Ef grunnskólinn verður fyrir hnjaski tekur framhaldskól- inn við því á sama hátt og verði fram- haldsskólinn fyrir áfalli tekur háskólinn við því. Það er ekkert nema eðlilegt. Nem- endur eiga alls ekki að þurfa að axla ábyrgðina á kerfi sem bregst þeim. Þó mikið og fjálglega sé talað um man- nauð á hátíðastundum þá finnst mér að auðgildi sé sett ofar manngildi í íslensku samfélagi. Við sjáum það bara t.d. á því hvernig starf þeirra sem vinna með mann- eskjur er metið til launa. Um daginn las ég grein um og viðtal við ungan fram- kvæmdastjóra stórfyrirtækis. Hans helsta dyggð var að hann vann gífurlegan langan vinnudag. Einu sinni í viku „reyndi“ hann að koma snemma heirn svo hann gæti a.m.k. séð börnin sín vakand einn virkan dag. Hann vann ekki heldur um helgar „nema nauðsyn krefði“. Honum var talið til tekna að hafa mætt til vinnu nánast beint af skurðarborðinu þar sem hann hafði þurft að gangast undir læknisað- gerð. - Hver eru skilaboðin? Fólk vinnur sér til húðar, fórnar sér fyrir fyrirtækið og starfsframann í sívaxandi samkeppnisum- hverfi, vinnur myrkranna á milli til að skapa peninga fyrir þjóðfélagið og verða ríkt. Við slíkar aðstæður verður lítill tími aflögu fyrir börnin og eldra fólkið. Samfé- lag sem sinnir ekki börnunum sínum og gamla fólkinu sínu vegna peningahyggju og græðgi getur ekki talist mannvænt samfélag. Þaö flýgur stundum aö mér að við séum á góðri leið með að glata mennskunni vegna firringar. Ég á bágt með að trúa að markmiðið með veru okkar hér á jörðinni sé að vinna sér til húðar, streða og strita upp metorðastigann í leit að.já, í leit að hverju eiginlega? Ef til vill erum við ekki að leita að neinu, miklu fremur leit- ast við að gleyma því að við erum mann- eskjur. Það getur nefnilega verið ansi erfitt að vera manneskja, vera meðvitaður um mennskuna í sjálfum sér, kljást við hana. Vegna sambandsleysis við eigið sjálf fyllumst við oft tómleika sem við reynum að fylla út í með alls konar gerviþörfum. Þetta kemur ekki hvað síst í ljós í desem- ber, í aðdraganda jólanna. Þá er eins og allt ætli um koll að keyra. Samfélagið bók- staflega tjúnast upp. Það væri óskandi að við gætum öll notið aðventunnar í friði, kyrrð og ró við kertaljós, góða bók, ljúfa tónlist eða notalegt spjall við vini og fjöl- skyldu í stað þess að týna sjálfum okkur í hávaðamenguðum tryllingi stórmarkað- anna. Með einlœgri von um gleðiríka jólahátíð. Jórunn Tómasdóttir FAXI 21

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.