Faxi

Volume

Faxi - 01.12.2004, Page 24

Faxi - 01.12.2004, Page 24
Ný revía í undirbúningi í minningu Ómars Jóhannssonar - rætt við Önnu Þóru Þórhallsdóttur nýskipaðan formann Leikfélags Keflavíkur rátt fyrir dræma aðsókn að seinustu uppfærslu Leikfélags Keflavíkur „Eftirlitsmanninum“, bretta menn bara upp ermar og reyna að gera betur, segir nýskipaður formaður Leikfélags Keflavíkur, Anna Þóra Þórhallsdóttir. Hún hefur ekki neina haldbæra skýringu á þessari dræmu aðsókn bæjarbúa, en segir að svona sé þetta stundum, sumar sýningar séu þannig að það sé uppselt á hverja einustu sýningu á meðan galtómt sé á aðrar. Og þegar það gerist megi menn ekki leggja árar í bát, heldur verði menn bara að herða róðurinn og það verði svo sann- arlega gert á næstu mánuðum. Faxi tók Önnu Þóru tali, um leik- listina og næstu sýningar. Hver eru nœstu verkefni félagsins? Það er nú ekki alveg búið aö ákveða það. Það er úr svo mörgu að velja, en ég lofa því að það verður líf og fjör í kringum þá sýn- ingu. Við erum hinsvegar í smá naflaskoðun með þetta allt sam- an, erum að skoða revíur þessa dagana og margt margt fleira en einnig önnur verkefni með tilliti til okkar stærsta markhóps, sem eru börnin. Þau eru mjög dugleg að mæta og því finnst okkur við skulda þeim góða sýningu með vorinu. Þið óttist þá ekki drœma aðsókn? Síður en svo. Það þýðir ekkert að væla þó að ein og ein sýning 24 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.