Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2004, Blaðsíða 27

Faxi - 01.12.2004, Blaðsíða 27
menn komu aö en ritstjórn annaðist Guðni Magnússon. Lengi hefur verið áhugi fyrir því að halda áfram þessu starfi og með það í huga ákvað stjórn IS nú að gera samstarfssamning við Byggðasafn Reykjanesbæjar sem fæli í sér að safnið tæki að sér varðveislu og sýningu muna og gagna sem tengjast starfsemi félagsins frá upphafi. IS leggur fram þrjár milljónir króna sem stofnframlag vegna samnings- ins en jafnframt mun félagið beita sér fyr- ir styrkjum til safnsins í framtíðinni. Með hliðsjón af þessum samningi mun byggða- safnið leggja áherslu á iðngreinar í starf- semi safnsins, m.a. með virkri söfnun muna og minja er tengjast iðngreinum, með sérstökum sýningum sem og með áframhaldandi útgáfu á Iðnaðarmannatali Suðurnesja. Með þessu rausnarlega fram- taki sínu hefur Iðnaðarmannafélag Suður- nesja ekki aðeins tryggt varðveislu iðn- sögu Suðurnesja til framtíðar heldur engu síður skotið styrkri stoð undir starfsemi byggðarsafnsins. HH Stjóm Iðnaðarmannafélagsins 1981-82. Fremri röð frá vinstri: Sigurður Erlendsson og Birgir Guðnason, formaður. Aftari röð: Sturlaugur Ólafsson, Bjami Guðmundsson ogKarlHólm Gunnlaugsson. Öllum vinum okkar og vandamönnum óskum við gleðilegra jóla og gæfu og gengis á nýju ári. Lifið heil Hrefna og Ólafur Björnsson Móttaka bifreiða til niðurrifs Tökum á móti bifreiðum til niðurrifs og gefum út vottorð til úrvinnslusjóðs vegna skilagjalds á bifreiðum. Kaupum einnig tjónabifreiðar til niðurrifs eða viðgerða. BG Bílakringlan ehf Grófinni 8 - 230 Keflavík Sími: 421-4242 Móttökustöð: Partasalan við Flugvallarveg SAMBAND SVEITARFÉLAGA Á SUÐURNESJUM Við óskum öllum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. FAXI 27

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.