Faxi - 01.12.2006, Blaðsíða 24
r
Myndistarmaðurinn Aki Grdnz:
Fjölbreytt listsköpun
og mögnuð afköst í
meira en hálfa öld
„Þetta er baraföndur sem ég hef aldrei tekió mjög alvarlega, ” sagði Aki Grdnz
þegar Faxi heimsótti hann í vinnustofu hans á Norðurstígnum í Njarðvík á dögunum.
Þar er eitthvert stœrsla ogJjölskniðugasta saf 'n listaverka og listmuna sem undirrit-
aður hefur séð á einum stað - málverk, koparstungur, leir- og höggmyndir, líkön og
teikningar. Þetta er þá aðeins brot af afrakstri fjölbreyttrar listsköpunar í meira en
hálfa öld. „Eg hefföndrað við þetta til þess að hafa ofan af fyrir mér og oft vegna
þess að ég er beðinn um það. ” Það hefur ekki verið sérstakt markmið hjá mér að
selja afraksturinn. Eg byrjaði ekki að merkja myndirfyrr en Sólveig dóttir mín sagði
að égyrði að gera það. ”
Margþætt listiðja
Aki, málarameistari í Njarðvík, varð áttræður
á síðasta ári. Hann á að baki langan og farsæl-
an feril, ekki aðeins á sviði listsköpunar heldur
einnig í félagsmálastarfi og bæjarpólitíkinni í
Njarðvíkum. Hann telst án efa til ljölhæfustu
og afkastamestu myndlistarmanna á svæðinu
sem er þeim mun merkilegra sem hann hef-
ur eingöngu haft listina í hjáverkum. Sam-
hliða aðalstarfi sínu hefur hann málað ógrynni
mynda sem til eru um allt land og raunar víða
um heim. Hann hefurgert brjóst- og lágmynd-
ir og myndastyttur en þeirra stærst og þekktust
er líklega styttan af Olafi Thors, sem stend-
ur á milli Hringbrautar og Brekkubrautar í
Keflavík. Aka hefur heppnast vel að sýna þar
vígreifan stjórnmálamann í ræðumannsstell-
ingum. Surnir vilja kenna hana við séríslensk-
an sósíalrealisma og hún dregur óneitanlega að
sérathygli og nýtur sín vel þar sem hún stendur
á lóð sýslumannsembættisins við Hringbraut.
Listiðja og pólitík
Aki hefur annast leiktjaldamálum, skreytt
íjölda húsa að utan og innan, þar á meðal
Hvalsneskirkju, Utskálakirkju, Félagsheimilið
Stapa og Grunnskóla Njarðvíkur. Kefivíking-
ar af eldri kynslóðinni muna vel eftir stórum
listaverkum Aka á gömlunt og velþekktum
byggingum í bænum, þar á meðal SBK og Að-
alstöðinni.
Hann hefur hlotið verðlaun í hugmyndasam-
keppni um merki og félagsfána. Hann hefur
hannað íjölda merkja fyrir félög og stofn-
anir, m.a. Kvenfélagsins Njarðvík, bæjarmerki
Njarðvíkur og Hafna, merki Iðnaðarmanna-
félags Suðurnesja, Samband Sveitarfélaga á
Suðurnesjum og fí. Verk hans prýða marga
staði á Suðurnesjum. Hanii hefur unnið úr
margskonar efnivið og notað margvísleg form
í verkum sínum. Frægir stjórnmálaleiðtogar,
þar á meðal Nixon fyrrverandi Bandaríkjafor-
seti hafa eignast listaverk eftir Áka. Það var
koparteikning affiskverkunarhúsum í Keflavík
sem Nixon fékk þegar hann kom til landsins
1973. Haft er fyrir satt að þetta liafi verið eina
gjöfin sem Nixon opnaði á leið úr landi. Áki
hefur einnig tekið þátt í mörgum samsýning-
urn bæði hér heima og erlendis. Hann málar
í mörgum stíltegundum, bæði natúralískum,
goðfræðilegum og hálf-abstrakt. Mannamynd-
24 FAXI