Frjáls verslun - 01.11.2003, Page 9
segir Sæmundur Valdimarsson,
stjórnarformaður KPMG. „Endur-
skoðunaraðferðir okkar eru í
stöðugri þróun í takt við breyt-
ingar í rekstrarumhverfi við-
skiptavina okkar og sérhæfing
eftir atvinnugreinum er ört vax-
andi innan félagsins þar sem við
teljum að slík sérhæfing tryggi
betri þjónustu."
Skattasvið KPMG er borið uppi
af lögfræðingum en með þeim
starfar fjölhæfur hópur endur-
skoðenda og vel menntaðs starfs-
fólks sem vinnur að þvf að þjónusta fyrirtæki varðandi skattamál og
skipulagningu þeirra. „Á skattasviðinu eru menn með tilbúnar lausnir
fyrir viðskiptavini, hvort sem það er einstaklingur sem hefur útrásar-
hugmyndir eða stærra fyrirtæki. Ráðgjafar okkar hafa sett saman
lausnir sem henta í mörgum tilfellum og þannig er hægt að leysa mál
hratt og vel," segir Sæmundur.
„Við aðstoðum íslenska aðila gagnvart erlendum skattareglum ef
þarf og einnig erlenda viðskiptavini í sambandi við íslensk skattalög.
Þar sem félagið er aðili að alþjóðlegri samsteypu höfum við góðan
aðgang að upplýsingum og þekkingu sem er til staðar í öðrum aðildar-
fyrirtækjum KPMG. Innan samsteypunnar eru gríðarlegir upplýsinga-
bankar."
Góðar viðtökur
Úhætt er að segja að KPMG hafi hlotið góðar viðtökur á íslenskum
fjármálamarkaði, enda hefur félagið vaxið og dafnað frá upphafi.
Markaðurinn hefur stöðugt verið að stækka og þörfin fyrir þjónust-
una hefur aukist að sama skapi. „Fyrirtæki eru almennt orðin stærri
og það gefur færi á ákveðinni sérhæfingu," segir Sigurður. „Um leið
er hægt að vera með markvissari þjónustu og sinna hverjum við-
Afgreiðsla KMPG.
Sæmundur Valdimarsson, stjórnarformaður KPMG á íslandi,
og Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri.
I
!
Starfsmenn skattasviðs KPMG ræða málin.
skiptavini betur. Með því að vera með útibú um allt land veitum við
þeim sem vilja hafa þjónustuna nálægt sér það sem þeir þurfa en að
sjálfsögðu hafa allar skrifstofur okkar aðgang að sömu gagnabönkum
og þjónustu og aðalskrifstofan í Reykjavík." HQ
KPMG
Borgartúni 27
IS-105 Reykjavík
Sími: 545 6000
Fax: 545 6001
9