Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2003, Page 50

Frjáls verslun - 01.11.2003, Page 50
UM ÁRAMÓT Hið nvia lan Landslagið í íslensku atvinnulífi hefin* gjörbreyst á aðeins tólf árum. Bankarnir eru núna allt í öllu, viðskiptablokkum heftu- fjölgað, komrn er fram ný kynslóð stjórnenda með allt önnur vinnubrögð og hugsunarhátt og áfram mætti telja; listinn er langur. Eftír Jón G. Hauksson Myndir: Geir Olafsson Fyrir tólf árum Klukkan var rúmlega tvö um nóttina. Jón Baldvin Hanni- balsson utanríkisráðherra bauð Þorsteini Pálssyni sjávar- útvegsráðherra upp á vindil í sigurvimunni. Þorsteinn þáði vindilinn þótt hann reykti ekki. Jón dró fram eldfæri og Þorsteinn hóstaði eftir fyrsta reykinn. Þeir voru vígreifir og fögnuðu fyrsta alvörusigri Viðeyjarstjórnar Davíðs Oddssonar. Skrifað hafði verið undir samkomulagið um Evrópska efna- hagssvæðið, EES, í glæsilegum húsakynnum Evrópusam- bandsins í Lúxemborg. Söguleg stund - sem mótað hefur mjög hið nýja og svipmikla landslag í íslensku atvinnulífi. Þetta var fyrir rúmum tólf árum, aðfararnótt 22. október 1991. EES-Samningurinn EES-samningurinn gengur út á sameigin- legan markað í Evrópu; þ.e. frjálst flæði vöru og þjónustu, vinnu- afls og Ijármagns á milli landa - sem og sameiginlegt laga- umhverfi fyrir þetta sameiginlega efnahagssvæði. Takið eftir þessu með flármagnið. Halda má því fram að EES-samningur- inn sé forsendan fyrir hinni glæsilegu útrás bankanna og annarra íslenskra fyrirtækja undanfarin ár. í fyrstu óttuðust margir að erlent flármagn myndi flæða til íslands í kjölfar samn- ingsins og gleypa hér allt og alla. Raunin hefur orðið önnur. Það hefur orðið að draga útlendinga hingað, nánast með töngum, til að fjárfesta í fyrirtækjum og hafa þeir fyrst og fremst haft áhuga á stóriðju. Það er aðeins á síðustu árum sem þeir hafa sýnt íslenskum skuldabréfamarkaði áhuga. fl slóð kolkrabbans En stöldrum aðeins við þetta haust, áríð 1991. Skömmu eftir að þeir Jón Baldvin og Þorsteinn hrósuðu sigri í Lúxemborg kom út bókin A slóð kolki'abbans eftir Örnólf HIÐ NYJA LANDSLAG í VIÐSKIPTALÍFINU 1 Fyrirferð bankanna. Bankarnir eru orðnir helstu hlut- hafar í stærstu fyrirtækjum landsins. 2 Ueldi viðskiptablokka. 3 Komin er fram ný kynslóð stjórnenda (excel- kynslóðin) sem beitir nýjum vinnubrögðum. 4 Óvissa einkennir störf forstjóra og líftími þeirra í starfi hefur styst. 5 Drifkraftur sterkra einstaklinga í litlum bæjarfélögum hefur dvínað. 6 Sala fjölskyldufyrirtækja er nánast tískufyrirbæri. 7 Tróin á hlutabréfamarkaðinn og yfirburði almennings- hlutafélaga hefur minnkað. 8 í fyrsta sinn er til orðið ríkt fólk í íslensku samfélagi. 9 Fyrirtæki eru ekki lengur trúfélög og almenningi virðist meira sama hverjir eiga þau. 10 Umræða um spillingu og grá suæði í uiðskiptalífinu setur meiri suip sinn á dægurmálin. 11 ísland er of lítið; útrás íslenskra fyrirtækja er áberandi markuiss og afgerandi. 12 Stórfréttir ór uiðskiptalífinu eru að verða daglegt brauð. 50

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.