Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2003, Blaðsíða 84

Frjáls verslun - 01.11.2003, Blaðsíða 84
LIF & HEILSA Myndir: GEIR ÓLAFSSON Hættur og glaður. Pétur Einarsson leikari stendur fyrir námskeiðum í því að hætta að reykja. R£YKII\IGAR Eg vil hætta! Þaö vilja allir reykingamenn hætta að reykja. Það vilja allir reykingamenn halda áfram að reykja. Finnst þér þetta mótsögn? Setningarnar hér að ofan eru flestum þeim sem þekkja reykingafólk kunnuglegar. Hver þekkir ekki reykinga- mann eða konu sem hefur stærstan hluta reykingatíma- bilsins verið að berjast við að hætta? Og getur það kannski stundum en byrjar jafnharðan aftur þrátt fyrir miklar yfir- lýsingar. Það eru ótal ráð í boði. Plástrar, dáleiðsla, geðlyf, tyggjó og dropar svo eitthvað sé nefnt Einum gefst þetta vel og öðrum annað en því miður er reynslan sú að allt of margir byija aftur að reykja. Pétur Einarsson leikari hefur um árabil ásamt félaga sínum, Valgeiri Skagfjörð, verið með námskeið sem hann kallar .Auðveldu leiðina til að hætta reykja". Hann segir námskeiðið alþjóðlegt og margprófað og gefa mikinn árangur. „Námskeiðin eru bresk að uppruna, upphafsmaður þeirra reykti mikið og þurfti stundum að reykja allt upp í fimm pakka á dag,“ segir Pétur, sem sjálfur hætti að reykja með þessari aðferð fyrir nokkrum árum. „Karlinn gerði ótal tilraunir til að hætta að reykja og það var ekki fyrr en konan hans stappaði niður fótum og æptí: „Af hveiju ertu að gera mér og börnunum þetta?“ sem hann fór að velta því fyrir sér af hveiju það væri svona erfitt að hætta. Þegar hann hafði hugsað vel og lengi, rann upp fyrir honum hver reykinga- gildran væri og hann hætti á stundinni og varð svo glaður að hann hljóp til konunnar og hrópaði: „Ég ætla að frelsa allan heiminn undan reykingum!“ Háleitur draumur þessa breska manns hefur nú náð þvi að virðast geta ræst. Fjölmargir einstaklingar hafa farið á námskeið og hætt og það án þess að nota tíl þess nokkur hjálpartæki. „Fólk fær fræðslu um allt reykingavesenið og ef það er opið og einbeitt, áttar það sig á því hvernig reykingagildran fer að því að halda því reykjandi," segir Pétur. „Og þegar fólk skilur það, hættir það einfaldlega að reykja. Aðferðin sem notuð er er svokölluð „cognativ" aðferð og felst ekki í hræðsluáróðri eða neinu slíku heldur eingöngu því að skilja. Og vegna þess að manneskjan er að öllu jöfnu rétt og sækir í heilbrigði, smellur hún aftur í heilbrigða ástandið." Námskeiðin eru 6 tímar í einu og segir Pétur sjaldgæft að fólk þurfi að koma afitur. Það komi þó fyrir og geti fólk mætt eins oft og það telur sig þurfa innan sex mánaða. „Ef viðkomandi hefiur komið á þijú námskeið og er enn reykjandi, getur hann valið um að fá endurgreitt eða fara á fleiri námskeið,“ segir Pétur sem telur ólíklegt að til þess komi. „Það er flestum auðvelt að hætta eftir fyrsta námskeið og það er það sem er svo skemmtilegt við þetta,“ segir hann og bætir við að hann hafi ekki orðið glaðari yfir neinu eins og því að losna undan reykingum. [£] 84
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.