Frjáls verslun - 01.11.2003, Qupperneq 86
LIF & HEILSA
Eftir UIGDÍSI STEFÁNSDÓTTUR
í fararbroddi
Fæðubótarefni og vítamín eru ekki lengur sjaldgæf sjón,
heldur eðlilegur hluti daglegs lífs nútímannsins.
Æ
IBandaríkjunum eru strangar reglur um framleiðslu og
sölu lyfja, vítamína og fæðubótarefna. Matvæla-
og lyijaeftirlitið (FDA) hefur eftirlit með
rannsóknum og framleiðslu á þessu sviði og
framleiðendur sem ná því að fá vörur sínar
samþykktar þar, hafa um leið fengið
ákveðinn gæðastimpil.
Now foods er gamalgróinn fram-
leiðandi sem alla tið hefur sett sér þau
markmið að framleiða fyrsta flokks
vörur á góðu verði. Fyrirtækið var
stofnað árið 1968, og stendur heitið
NOW fyrir Natural, Organic and
Wholesome, sem er það sem bræðurnir
Elwood og Lou Richard, stofnendur
Now Foods, ákváðu í upphafi að yrðu
markorð fyrirtækisins.
Þar sem rannsóknarstofa fyrirtækisins sér um nær allar
rannsóknir innan þess, er hægt að bregðast hratt við
beiðnum og breytingum auk þess sem nýjar
uppgötvanir eru fljótar að skila sér í framleiðslu.
v
Double Strength #
^lucosamifle
4 Chonclroió11
Gæðaeftirlit Innan fyrirtækisins starfar
fólk með mikla menntun á sviði heil-
brigðis- og vísinda og hefur fyrirtækið
fengið hverja viðurkenninguna á fætur
annarri. Rannsóknarstarf innan þess er
öflugt og fræðslustarf einnig stór þáttur.
Þó svo gæðin séu mikil í framleiðslunni
og aðeins fyrsta flokks hráefni notað, er þess
jafnframt gætt að halda kostnaði niðri bæði í
framleiðslu og í rekstri. Engar dýrar
auglýsingar eru leyfðar og ef hægt er að kaupa tæki og hús-
búnað notað er það gert fremur en að eyða í óþarfa. Þetta gerir
það að verkum að vörur fyrirtækisins eru að jafnaði mun
ódýrari en samkeppnisaðilanna.
120 Tablets
A Dlatary Supplement
Rannsóknir eru undirstaða þess
að hægt sé að framleiða betri
vörur. Vítamín og fæðubótar-
efni eru höfuðframleiðsluvörur
Now Foods.
Fræðsla til almennings Fróðleiksþorsti
almennings um heilbrigðismál er mikill og
Now foods hefur brugðist við því. Á heima-
síðu fyrirtækisins: http://www.now-
foods.com er að finna viðamiklar upplýs-
ingar um sjúkdóma, vítamín, lyf og ýmis
heilbrigðismál. Reyndar er þarna að finna
upplýsingar sem nýtast fagfólki ekki síður
en almenningi en þar sem starfsfólk Now
Foods er allt sérfræðimenntað, eru upplýs-
ingarnar þess eðlis að þeim er hægt að
treysta. Enda þess gætt að aðeins áreiðan-
legar upplýsingar séu settar fram.
Á vefsíðunni er einnig að finna góðar
upplýsingar um fyrirtækið og framleiðslu-
vörur þess auk spurningalista sem fólk
getur svarað og fundið þannig út hvernig
heilsu þess er háttað. Now Foods framleiðir
um 1800 vörutegundir sem skiptast á milli
vítamína, andoxunarefna og annarra heilsu-
tengdra vöruflokka.
Þeir sem áhuga hafa á því að fylgjast með
því sem er að gerast á ákveðnum sviðum
heilbrigðismála geta gerst áskrifendur að fréttabréfum fyrir-
tækisins en það er einnig á heimasíðunni. Um er að ræða
íjölmarga flokka og velur hver og einn sér það sem hann
hefur áhuga á. [S
C-IOOO
Walncd Rclnrtf
W'«h k.« j
...
Sulfate
Join, Support VjOOlO
Zz é jðL
----- --i-’jfc
*
.1 n*ui n
H-400
j,, ' & IxlvinaoKi •
> * S)-mp
i§ÍS2’
jTar
^NTRO)
tf
86