Frjáls verslun - 01.08.2004, Side 39
Skýr. 1 KB banki.
SKÝRINGAR
(1) KB-BANKI
Kaupþing og Búnaðarbanki sameinuðust um mitt síðasta
ár og úr varð KB-banki. Það skýrir hina miklu veltuaukn-
ingu.
(2) HAGAR
Hagar eru nýtt fyrirtæki á listanum og rekur Bónus, Hagkaup,
10-11 og fleiri verslanir sem áður voru í eigu Baugs. Baugi
Group var skipt upp í Baug ID og Baug ísland 1. mars 2003.
Saugur ísland fékk síðan nafnið Hagar sl. haust og um leið
breyttist eignarhaldið á félaginu. Velta Haga á listanum nær
frá 1. mars 2003 til 29. febrúar 2004.
(3) ÍSLANDSBANKI
Sjóvá-Almennar eru inni í veltutölum og samstæðureikn-
'hgi íslandsbanka.
(4) EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Eimskipafélaginu var skipt upp í byrjun þessa árs með því
að dótturfélagið Brim var bútað niður og helstu eignir þess,
UA, HB, Skagstrendingur og Boyd Line, seldar. Ennfremur
Var nafni félagsins breytt úr Hf. Eimskipafélagi íslands í
Surðarás hf. sem áður var fjárfestingarfélag fyrirtækisins.
Flutningafélagið heitir núna Eimskipafélag íslands og er
Það dótturfélag Burðaráss og sinnirflutningastarfsemi eins
°g undanfarin 90 ár. Nýlega sameinuðust svo Burðarás og
Kaldbakur.
(5) ACTAVIS GROUP
Langstærsti hluti af starfsmönnum Actavis Group starfar í
Búlgaríu. Það skýrir lág meðallaun hjá fyrirtækinu.
(6) NORVIK (Byko)
Mikil veltuaukning félagsins stafar af kaupum Norvíkur á
Kaupási (Nóatúni, Krónunni og 11-11) á síðasta ári.
(7) AIR ATLANTA
Air Atlanta keypti breska flugfélagið Excel Airways í febrúar
á þessu ári og mun það auka veltu Atlanta á þessu ári.
(8) BAKKAVÖR GROUP
Líkt og hjá öðrum stærstu fyrirtækjum fslenskum starfar
obbinn af starfsmönnunum erlendis.
(9) BAUGUR GROUP
Baugur Group er núna fjárfestingarfélag (eignarhalds-
félag) sem á eignir í Bretlandi og á ísiandi. Velta dóttur-
félaga Baugs Group eru ekki inni í samstæðunni. Stærsti
hluti hagnaðar Baugs er óinnleystur gengishagnaður sem
nemur 13,2 milljörðum króna. En hagnaður Baugs eftir
skatta var 9,5 milljarðar á síðasta ári. Frjáls verslun telur
hér óinnleystan gengishagnað til tekna og er hann uppi-
staðan í 14,5 milljarða veltu félagsins á síðasta ári. Um
þetta eru skiptar skoðanir. Alþjóða reikningsskilaráðið
leyfir svona tekjufærslu á óinnleystum gengishagnaði í
gegnum rekstrarreikninginn. Víða er þó sú venja að færa
óinnleystan gengishagnað í gegnum sérstakan endurmats-
reikning í eigin fé, þ.e. færa hann aðeins í gegnum efna-
hagsreikninginn. Við höldum okkur við fyrri skilgreining-
una, þ.e. að hagnaður sé tekjur mínus gjöld, og tekjufærum
óinnleystan gengishagnað.
39