Frjáls verslun - 01.08.2004, Blaðsíða 79
FORSTJÓRAVIÐTÖL
Fí
11
e
■jölmiðlarnir hafa verið mjög í sviðs-
lljósinu enda gengið á ýmsu í starfs-
emi þeirra. Árið 2003 var flestum
þeirra mjög þungt rekstrarlega og þá
Morgunblaðinu ekki síður en öðrum.
„Þetta ár var útgáfufélaginu mjög þungt
rekstrarlega og þar kom þrennt til: Þetta
var fyrsta árið sem við ijölguðum útgáf-
udögum og hófum mánudagsútgáfu.
Við vissum fyrirfram, og þegar gengið
var til framkvæmda, að þetta myndi
hafa meiri kostnað en tekjur í för með
sér. I öðru lagi urðum fyrir miklu tjóni við gjaldþrot
DV þar sem við töpuðum 100 milljónum króna. í
þriðja lagi stóð yfir verðstríð í auglýsingum sem
þýddi að við þurftum að lækka verð umfram áæt-
lanir og tekjurnar urðu því lægri þó að við ykjum
auglýsingamagnið verulega. Þetta eru ástæðurnar
fyrir því að síðasta ár var okkur mjög þungt,“ segir
Hallgrímur Geirsson, framkvæmdastjóri Arvakurs,
útgáfufélags Morgunblaðsins.
Fyrsta afborgun á næsta ári Reksturínn áríð 2004
lítur mun betur út en 2003. Hallgrímur segir að árið
hafi byrjað þunglega en verulega ræst úr og séu
þeir Morgunblaðsmenn bjartsýnir með reksturinn
á þessu ári. „Við erum að laga okkur að þeirri stað-
reynd að DV er ekki lengur í viðskiptum við okkur
með prentun. Hvað varðar framkvæmdir og ijárfest-
ingu félagsins í nýrri prentsmiðju í Hádegismóum
þá er sá misskilningur í gangi að þessi ijárfesting
sé og hafi verið að sliga rekstur útgáfufélagsins
undanfarin ár, mánuði og misseri. Það stenst ekki
eitt og sér. Fyrsta afborgunin af ijárfestingaláninu
sem var tekið vegna framkvæmdanna kemur ekki
til greiðslu fyrr en á miðju næsta ári. Við höfúm því
ekki haft neitt af því að segja þó að við búum okkur
undir það á þessu og næsta ári að bera þessa ijár-
festingu."
Pláss fyrir þrjú blöð? Hörð og óvægin sam-
keppni er og hefur verið á Jjölmiðla- og prentmark-
aði. Hallgrímur segir að þegar horft sé til ijölmiðla-
niarkaðar sé mikilvægt að gera sér grein fyrir því að það sé
ekki bara samkeppni innbyrðis milli prent-
niiðla annars vegar og innbyrðis milli ljós-
vakamiðla hins vegar heldur séu þeir allir
að gera út á sömu auglýsingakökuna og
eftir atvikum keppa um athygli sama fólks
sem neytenda miðlanna. Frá samkeppn-
issjónarmiði sé því ekki hægt að greina á
milli ijölmiðla eftir því hvort þeir starfa á
prentmiðlamarkaði eða ljósvakamarkaði.
„Mér finnst líka nauðsynlegt að litið
sé til samkeppnisreglna og gildandi
samkeppnislaga af hálfu yfirvalda
með þennan skilning í huga. Það er
svo líka samkeppni á prentmarkaði
og hefur verið lengi. Þannig verður
það væntanlega áfram. Samkeppnin
minnkar ekki með tilkomu nýrrar
prentsmiðju Arvakurs."
- Eru betta umbrotatímar á fjölmiðla-
marhaði? Já, það er óhætt segja
það. Það er skoðun sumra að það sé ekki pláss fyrir þijú
dagblöð. Getum má leiða að því að Fréttablaðið hafi orðið
DV að falli. Auðvitað hefur tilkoma ókeypis blaðs, sem borið
er í hvert hús og gefið út í tvöfalt stærra upplagi en Morg-
unblaðið, sín áhrif og við höfum alltaf gert ráð fyrir að það
hlyti að hafa áhrif á áskrifendaijölda, auglýsingaverð og sam-
keppnina yfirleitt."
Önnur Norðurljós til mótvægis? Hallgrímur telur að allir
ijölmiðlar hafi þurft að hafa fyrir tilveru sinni á þessu ári og
spáir þvi að það eigi eftir að ganga á ýmsu á næsta árí. „Eg
held að það verði engin breyting á þessu og að það reyni á
þolrifm í öllum ijölmiðlum á næsta ári. Þessi samkeppni getur
leitt til þess að það verði einhver uppskipti, það liggur í loftinu
á þessu ári og er að gerast. Þá er ég t.d. að velta fyrir mér
því sem hefur verið að gerast á ljósvakamarkaði. Mér fannst
t.d. liggja í loftinu að Skjár einn gengi undir Norðurljós því
að hann er Norðurljósum skeinuhættur samkeppnisaðili, en
annar aðili hefur náð honum undir sig. Skjár einn verður því
væntanlega áfram í samkeppni við Norðurljós," segir hann.
„Maður veltir fyrir sér hvort allir þessir ijölmiðlar geta
lifað sjálfstæðir eins og er í dag eða hvort það verður sam-
runi, hvort einhverjir miðlar leggja upp laupana á næsta ári.
Mér er minnisstæð grein í Fréttablaðinu um bandarískan
prófessor sem hafði skoðað samkeppnismarkaðinn hér á
landi og talið meiri samþjöppun í eignarhaldi hér en í Band-
aríkjunum og öðrum löndum Evrópu. Hann spurði hvar hin
Norðurljósin væru. Hann taldi þau vanta til mótvægis og
taldi skilyrði fyrir því vera fyrir hendi. Eg held að hann hafi
ekki reiknað með áhrifum Ríkisútvarps og Ríkissjónvarps
sem setja strik í reikninginn á markaði þar sem þriðja sjón-
varpsstöðin er að hasla sér völl meðan fyrir eru RUV og
Norðurljós í sjónvarps-
rekstri. Þá er spurning
hvert sé hlutverk ríkis-
ijölmiðlunar, hvort hún
eigi að festa það landslag
sem fyrir er í sessi og
koma í veg fyrir að aðrír
geti komið inn á mark-
aðinn.“H!i
Hvað varðar framltvæmdir og
fjárfestingu félagsins í nýrri prentsmiðju
í Hádegismóum þá er sá missldlningur
í gangi að þessi fjárfesting sé og hafi
verið að sliga rekstur útgáfufélagsins
undanfarin ár, mánuði og misseri. Það
stenst ekki eitt og sér.
79