Frjáls verslun - 01.08.2004, Blaðsíða 174
V
FQLK
„Ég hef notaö tækifærið og breytt bæði lceland Review og
Atlanticu að mínu skapi. Iceland Review á fyrst og fremst að
vera skemmtilegt tímarit fyrir breiðan hóp fólks,“ segir Anna
Björnsson Mynd: Vilhelm Gunnarsson
tímarit fyrir breiðan hóp
fólks, og þrátt fyrir að það sé
á ensku þá vona ég að það
höfði líka til Islendinga. Við
blöndum saman vönduðum
umijöllunum um fréttnæm
málefni, nýjustu straumum í
tónlist, listum og hönnun, við-
tölum, viðskiptum og pólitík.
Að sjálfsögðu greinum við frá
ýmsum landshlutum þar sem
ljósmyndir Páls Stefánssonar
eru í aðalhlutverki.
Iceland Review hefur orðið
frægtfyrireinstakarlandslags-
myndir Páls í gegnum þau 22
ár sem hann hefur unnið fyrir
blaðið. Bæði blöðin hafa líka
tekið hönnunarlegum breyt-
ingum síðan ég tók við og eru
orðin nútímalegri. Eg er mjög
stolt af hönnuðunum okkar
sem gera Iceland Review
og Atlantica að tímaritum í
heimsklassa. Við erum mjög
fámennt teymi sem vinnum
að blöðunum, ég og Páll Stef-
ánsson myndritstjóri, tveir
hönnuðir, tveir blaðamenn
og þrír sölumenn og ég held
að við getum verið mjög sátt
Anna Björnsson, ritstjóri
lceland Review og Atlanticu
Textí: ísak Ólafsson
Iceland Review er elsta tíma-
rit á íslandi og var stofnað
af hugsjónamönnunum
Haraldi J. Hamar og Heimi
Hannessyni árið 1963. Mark-
mið blaðsins frá upphafi var
að kynna Island og Islendinga
fyrir umheiminum - náttúru
landsins, menningu, mannlif,
söguna og viðskiptalífið - og
þetta markmið er enn haft að
leiðarljósi," segir AnnaBjöms-
son sem ritstýrir blöðunum
Iceland Review og flugblaði
Flugleiða, Atlanticu.
„Tímamir hafa hins vegar
mikið breyst á undanfömum
40 ámm og fólk veit heilmikið
um landið. Ferðamenn hafa
lfka breyst mikið undanfarin
ár og Iceland Review breytist
því líka í takt við tímann. Eg
tók við sem ritstjóri blaðsins í
mars síðastliðnum eftir að hafa
verið fastráðinn blaðamaður
á Iceland Review, Skýjum og
Atlanticu í fimm ár.
Eg hef notað tækifærið og
breytt bæði Iceland Review
og Atlanticu að mínu skapi.
Iceland Review á fyrst og
fremst að vera skemmtilegt
við útkomuna. Svo verður lika
að nefna að Iceland Review er
með íslenskar fréttir á ensku
á vefnum icelandreview.com
sem er afar vinsæll og við
fáum þúsundir lesenda á degi
hveijum. Vefurinn er í endur-
hönnun og verður enn betri
og flottari í haust“
Anna bjó meirihluta æsk-
unnar erlendis þar sem faðir
hennar er diplómat og hún
gekk í bamaskóla í London.
„Þar varð ég jafnvíg á enska
tungu og þá íslensku. Flutti
svo heim og fór í MH. Eftír
stúdentinn fór ég aftur til
Englands - í University Col-
lege London í BA-nám í
bókmenntafræði. Eftir það
fluttí ég tíl Parísar og lærði
frönsku ásamt því að byrja
í lausráðinni blaðamennsku
og vann ma. hjá Time Out.
Flutti heim tíl íslands 1999,
vann um skamman tíma hjá
Kvikmyndasjóði og byrjaði
svo hjá Iceland Review undir
ritstjóm Jóns Kaldals. Þessi
fimm ár hjá útgáfunni hafa
verið afar skemmtileg, ég er
lánsöm að hafa unnið með
skapandi, kröftugu og metn-
aðarfullu fólki.”
Eiginmaður Önnu Bjöms-
son er Cyrille Collard, við-
skiptafulltrúi hjá kanadíska
sendiráðinu í Reykjavík. Böm
þeirra em Nanna Francisca,
fædd 2000, og Nói Baldvin,
fæddur 2002. „Tími minn fyrir
utan vinnuna fer auðvitað að
miklu leyti í bömin. Eg er
samt mjög dugleg að fylgj-
ast með menningarlífinu, fer
oft á tónleika og sýningar.
Finnst frábært það sem er
að gerast á Islandi á sviði
nýbylgjutónlistar og nútíma-
listar. Eg hef mjög gaman
af ferðalögum þó þeim hafi
fækkað þar sem bömin em
svona lítil. Hef ferðast vítt og
breitt um heimsálfur og finnst
ekkert skemmtilegra en að
upplifa framandi menningar-
heima.Vonandi gefst mér líka
bráðum meiri tími til að ferð-
ast innanlands, ég er sérstak-
lega hrifin af hálendinu.
Eg er mikill grúskari og
bókaormur og hef brennandi
áhuga á nútímabókmenntum,
fornmenningu og trúar-
bragðasögu. Líkamsræktin
mín felst aðallega í jóga og
pilates þar sem andlegur og
líkamlegur styrkur fer saman
og svo nýt ég þess mjög að
vera undir bemm himni og
njóta íslenskrar náttúm til
hinsýtrasta."®]
174