Frjáls verslun - 01.08.2004, Blaðsíða 71
FDRSTJÚRAVIÐTQI
BYKO JÓN HELGI GUÐMUNDSSON
Líflegt í byggingariðnaði
Byggingariðnaður, matvara, raftæki, húsgögn og íþróttavörur. Jón Helgi Guðmundsson
kemur víða við í starfsemi sinni og rekur m.a. fyrirtæki í Lettlandi og Rússlandi.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
r
rið 2003 voru heilmikil umsvif í byggingaiiðnaði, árið var
^Walveg bærílega líflegt og það hefur haldist vel fram eftir
■ Bþessu ári, ekki síst við byggingaffamkvæmdir. Þær hafa
verið heilmiklar. Byggingariðnaðurinn hefur verið á stöðugri
uppleið síðustu árin. Ekki hafa verið byggðar jafnmargar full-
gerðar íbúðir eins og nú frá því á áttunda áratugnum, þ.e. 1.200-
1-600 íbúðir síðustu árin og 2.000 á síðasta ári, þannig að það er
töluverður kippur í þessu. Stærsti hlutinn af þessari aukningu er
a höfuðborgarsvæðinu en þó eru framkvæmdir aðeins að taka
wð sér fyrir austan, einkum á Reyðarfirði og Egilsstöðum, fyrst
°g fremst vegna væntanlegrar stóriðju. Þó að Islendingum hafi
fekkað sem hafa þar skráða búsetu hafa útlendingar komið í
staðinn í verulegum mæli. Þá var árið líflegt á Suðurlandsundir-
lendi. Við opnuðum þar verslun fyrr á þessu ári og henni hefur
verið vel tekið,“ segir Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Byko.
Margt að laga Jafnframt því að vera forstjóri Byko er Jón
Helgi stjómarformaður Norvikur en undir þeim hatti era fyrir-
teki í raftækjum og matvöru ekkert síður en í byggingariðnaði.
Þannig telst Kaupás, sem rekur m.a. Nóatún, 11-11 og Krónuna,
undir Byko-hattinn en Norvik keypti einmitt 100% hlut í Kaupási
1 fyrra. „Við tókum ekki við Kaupási fyrr en urn mánaðamótin
október-nóvember þannig að það reyndi svo sem ekki mikið
a þann rekstur á síðasta ári. Eg settist þar niður og kynnti mér
uienn og málefni og nú er þar tekinn við annar maður sem hefur
starfað hjá okkur í mörg ár. Hann heitir Sigurður Amar Sigurðs-
son. Við höfum verið að fást við það að koma betur að þeim
rekstri, laga það sem hægt er að laga og virðist þurfa að laga.
hað er að mörgu að hyggja þegar nýir menn taka við.“
Matvaran er ekkert ýkja frábrugðin annarri smásölu. „Hún
er vissulega ný fyrir okkur en það gilda svo sem sömu lögmál
um hana og annað í smásölunni. Við tókum líka við Húsgagna-
höllinni og Intersport og þar eru mörg verkefni að fást við.
heksturinn þar er ekki góður. Við erum að koma okkur þar
áleiðis," segir hann.
Jón Helgi kveðst bjartsýnn með það sem Byko hefur tekið
ser fyrir hendur. Hann segir mörg spennandi verkefni í Kaup-
asi. „Við settum okkur það markmið að ætla okkur þijú ár til
að komast þar vel af stað. Bráðum er eitt ár liðið og þetta hefur
allt færst í rétta átt.“
Baftækí og RÚSSland Rafvöraverslunin hefur verið sterk
eining innan Norvikur. Ný Elko-verslun var opnuð í Skeifunni í
mars á þessu ári og segir Jón Helgi ánægju ríkjandi með gang-
inn í raftækjunum í heildina litið. „Þetta hefur gengið mjög
þokkalega. Eins og allt annað verður þetta aldrei alveg bein
braut en það heíúr engu að síður skilað sér vel og verið spenn-
andi að fást við þetta verkefni. Elko er verðleiðandi á íslandi.
Flestir hafa tekið eftir þvi að raftæki eru ódýr, og ef opinber
gjöld eru undanskilin þá er verðið hér fyllilega sambærilegt við
það sem er annars staðar.
Síðan keyptum við fyriifæki í Lettlandi á síðasta ári sem
heitir Ced og það bættist við starfsemina sem tyrir var í
Lettlandi. Ced er líklega einn stærsti fuglahúsaframleiðandi í
Evrópu, framleiðir fúglahús úr timbri og flytur út, mest til Bret-
lands en líka viðar. Reyndar er ýmislegt fleira framleitt þama.
Við fórum í þessi kaup vegna þess að þama gátum við nýtt
töluvert mikið af efni sem fellur til í Bykolat þannig að þetta
fellur vel saman, svipaður markaður og svipuð aðferðafræði
sem þarf í reksturinn. Við erum að koma þessu vel af stað og
gerum heilmikið á þessu ári.“
Jón Helgi á helmingshlut í Oddaflugi sem aftur á 32 prósenta
hlut í Flugleiðum. Hann segist ekki vera mjög virkur innan Flug-
leiða en sér finnist Flugleiðir ákaflega spennandi fyrirtæki. Þar
sé gott fólk í daglegum rekstri.
Líflegt á byggingamarkaði Árið 2004 íítur mjög þokkalega út.
Byggingariðnaðurinn er í töluverðri uppsveiflu áfram, töluverðar
framkvæmdir og mikið að starfa hjá iðnaðarmönnum. Við
erum í þeim geira þannig að við reiknum með að það sé líflegt
framundan í byggingariðnaði nema eitthvað óvænt komi upp
á. Verslun með raftæki er tekjuteygin og því er þetta spuming
um hvemig tekjumyndunin verður og hvemig væntingar fólks í
þjóðfélaginu em. Ef væntingar em miklar þá er fólk fúsara til að
skipta um raftæki. í samdrætti er þetta öfugt, fólk kaupir síður
raftæki,“ segir Jón Helgi.
Sveiflumar era ekki eins miklar í matvörunni. „Við ætlum
að halda okkar hlut og auka hann eins og við getum. Við eram
að koma okkur fyrir á markaði, bæta verslanir og þjónustu við
viðskiptavini. Krónan er valkostur í lágvöraverðsgeiranum sem
við ætlum að efla. Við eram að leita meira til Rússlands eftir
hráefni og eram þegar með starfsemi þar á nokkram stöðum,
bæði í skógarhöggi og við frekari úrvinnslu á timbri. Eg á von
á því að við reynum að eflast þar. Það tengist þvi sem við eram
að gera í Lettlandi og þar gengur ágætlega. Við erum hóflega
bjartsýn á næstu framtíð. Það eina sem ég óttast er að það verði
heldur hratt farið í okkar þjóðfélagi, það verði fullmikil þensla.
Við höfum margfarið í gegnum svoleiðis ferli." IH
71