Frjáls verslun - 01.08.2004, Blaðsíða 169
hins vegar vín sem verður að vera til í vínbúðunum. Á meðan
við höfum ríkiseinkasölu hér á landi eigum við að geta krafist
þess að það úrval sem á boðstólum er í vínbúðunum spegli
nokkuð fjölbreytileika vínheimsins. I stuttu máli, - að í boði
séu helstu og áhugaverðustu víntegundir. I vínbúðunum eiga
ekki aðeins að vera til ódýr „kjörbúðavín“ sem flest eru mjög
svipuð. Ef þið finnið enn í hillum Heiðrúnar eða Vínbúðar-
innar í Kringlunni Brundlmayer Ried Kaferberg Gruner Velt-
liner, þá kaupið hana þó svo að flaskan kosti 2.760 krónur.
Það er frábært að fá sér glas af þessu vandaða víni og hlusta
á eitthvað fallegt eftir Mozart. Vonandi eigum við eftir að sjá
meira úrval af Gruner Veltliner í vínbúðunum nú í vetur.
Lamb Fátt er betra að hausti til en nýtt lambakjöt sem
bragðbætt er með hvítlauk, timian, svörtum pipar og salti, -
og svo auðvitað gott rauðvín. Eg hef tekið eftir því að nokkrar
Cabernet Sauvignon víntegundir frá Ástralíu eiga einstaklega
vel við með lambakjöti. Meðal þess sem hafa náð töluverðum
vinsældum hér á landi að undanfömu, er Yellow Tail. Þetta
em nokkuð óvenjulegir Ástralir. Við fyrstu kynni gætu þessi
vín verið frá Kalifomíu. Þegar betur er að gáð koma þó hin
áströlsku áhrif í ljós. YellowTail Cabemet Sauvignon er ljóm-
andi lambakjötsvín. Ilmurinn er frískandi, má greina negul
og myntu. Bragðið er þægilegt, léttkryddað, svartur pipar,
beijasulta, súkkulaði og jafnvel sveskjur. Þetta vín er á góðu
verði kr. 1.290, - sem sagt, góð kaup.
Fyrr í greininni var minnst á vín frá Argentínu. Það er
nefnilega einnig hægt að mæla með argentínska víninu Cat-
ena Cabemet Sauvignon. Þetta er einkar ljúft vín og þægilegt,
með fínlegu eikarbragði, - ljómandi vín með lambinu. Frábær
Ástrali með lambakjöti er Hardy's Nottage Hill Cabemet
Sauvignon Shiraz. Þetta er einkar þroskað vín og vel upp
byggt. Eg vildi einnig benda á að það er hátíðlegt og aldeilis
frábært að drekka kampavín með lambakjöti, einkurn og sér í
lagi ef góð sósa er höfð með því. Bellinger Bmt Special Cuvee
er kampavín sem engan svíkur. Þetta er vel þunt kampavín
með frískandi bragði af grænum eplum, sítrónu og beijum.
Villibráð Með villibráð bregðast Shiraz-vínin ekki. Þó ber
að hafa í huga að mikill munur er á Shiraz-vlnum eftir þvi
hvaðan þau koma. Ef vínið er af norðlægum slóðum er það
meira kryddað, en af suðlægari slóðum og sólríkum er það
aðeins sætara og meira beija- eða sultubragð. Gott vín sem
sameinar þetta tvennt er Chateau Stg. Michelle Syrah frá
Washington. Þetta er ágætis villibráðarvín, gott með hrein-
dýri og gæs. Frönsku Rhone-vínin em auðvitað kjörin með
villibráð. E. Guigal Corzes-Hermitage er slíkt vín, góður full-
trúi Rhone-vínanna. Nokkrar tegundir frá Argentínu em ljóm-
andi með villibráð. Þess má geta að Argentína er eitt mest
spennandi vínlandið í dag. Búist er við að vínframleiðslan þar
muni aukast um 30% á næstu ámm. Mest mun aukningin vera
í litlum og meðalstómm fyrirtækjum. Vínáhugafólk ætti því
að hafa augun á Argentínu á næstu ámm. Santa Ana Cabemet
Sauvignon Capas Privadas er vín sem kemur ánægjulega á
óvart. Þetta er höfugt vín með góðri eik, miklu berjabragði
VÍNUMFJOLLUN SIGMARS B.
og skemmtilega kryddað, hvítur pipar, negull, vanilla og smá
tóbak. Þetta er gott vín með hreindýri og rjúpu.
Með sjófuglum og jafnvel önd er hins vegar ljómandi að
hafa Merlot. Yellow tail Merlot er skemmtilegur Merlot.
Vínið er vel byggt, gott tanin, fallega dimmrautt á lit með
góðu berja- og kryddbragði, til dæmis má greina í eftirbragð-
inu sólber og kaffi. Með sjófuglum má einnig drekka hvítvín.
Chardonnay með góðri eik og smjöri er frábært vín með
svartfugli. Slíkt vín er Concha y Toro Amelia Chardonnay.
Þetta vín er fallegt á litinn, ilmríkt og með þéttu bragði.
Liturinn er grænleitur og af því er beija- og hunangsangan.
Bragðið flókið; hunang, banani, sítróna og melóna.
Ber 09 Súhhulaðl Gott súkkulaði, aðalbláber, bláber, jarðar-
ber er eitthvað sem passar einstaklega vel saman. Góð súkkk-
ulaðisósa eða súkkulaðimúss og fersk ber er góður eftirréttur.
Með svona bragðmiklum eftirrétti er tilvalið að hafa hálfsætt
kampavín. Lanson Ivory Label Demi-sec er kampavín á góðu
verði. Vínið þarf að vera vel kælt, u.þ.b. 8°C. Vel á minnst;
áður en matreiðslan hefst og sest er að borðum mæli ég með
góðri gönguferð, - nú er rétti tíminn til að njóta haustlitanna.
Eg get fullyrt við ykkur að þegar heim er komið smakkast
vínið enn betur og maturinn er bragðmeiri og betri. Hll
Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum vínum:
Hvítvín:
Brundlmayer Ried Kaferberg Gruner Veltliner kr. 2.760
Concha y Toro Amelia Chardonnay kr. 2.250
Kampavín:
Bollinger Brut Special Cuvee kr. 3.390
Lanson Ivory Label Demi-sec kr. 2.640
Rauðvín:
AlmosMalbec kr. 1.290
Cutler Creek Shiraz Cabernet kr. 1.090
Yellow Tail Cabernet Sauvignon kr. 1.290
Catena Cabernet Sauvignon kr. 1.590
Hardy's Nottage Hill Cabernet Sauvignon Shiraz kr. 1.390
Chateau Stg. Michelle Syrah kr. 1.540
E Guigal Crozes-Hermitage kr. 1.990
Santa Ana Cabernet Sauvignon Capas Privadas kr. 1.280
Yellow Tail Merlot kr. 1.290
169