Frjáls verslun - 01.04.2004, Blaðsíða 24
FJDLMIÐLAR - MARKASSHLUTDEILD
FJÖLMIÐLAMARKAÐURINN:
Hvers
virði er
Fréttablaðið
án Baugs?
m
Iumræðunni um flölmiðlafrumvarpið að undanförnu hefur þvi
verið haldið fram af stuðningsmönnum fr umvarpsins að auð-
velt verði að finna fjárfesta sem kaupi í Norðurljósum af
Baugi.
En þá vaknar spurningin um það hvers virði Norðurljósin, en
þó öllu heldur Fréttablaðið, séu án Baugs og Jóns Asgeirs sem
aðaleiganda. Fyrirtæki tengd Baugi hafa verið mjög sterkir aug-
lýsendur í Fréttablaðinu. Má þar nefna Hagkaup, Bónus, 10-11,
Húsasmiðjuna, Blómaval, Útílíf, Debenhams, Zöru, I.ytju (nú í
eigu VÍS o.fl.), Vörð, Allianz, ATV, BT og áfram mætti telja. Hins
vegar verður ekki fram hjá því litið að Fréttablaðið skorar hæst
í lesendakönnunum.
Mikil samkeppni er á markaði fjölmiðla og flest fyrirtækin
voru rekin með tapi á síðasta ári. Tap einkenndi reksturinn í
þessari atvinnugrein. Velta fjölmiðlafyrirtækja á þessu ári er
áætluð um 14,4 milljarðar króna. Þar af má gera ráð fyrir að
auglýsingatekjur verði á bilinu 9 til 10 milljarðar.
I greinargerð sem Benedikt Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri Heims, útgáfufélags Fijálsrar verslunar, sendi allsheijar-
nefnd Alþingis, að ósk nefndarinnar, áætlaði hann veltu
tjölmiðlafyrirtækja á árinu 2004 um 14,4 milljarða.
UELTA FJOLMIÐLA ER 14,4 MILLJAROAR
flætluð uelta árið 2004
(milljarðar)
Norðurljós ........................ 5,6
RÚV ............................... 3,0
Árvakur ........................... 2,8
Skjár 1 ........................... 0,5
Fróði ............................. 1,0
Framtíðarsýn ....................... 0,25
Heimur ............................. 0,25
Önnur félög........................ 1,0
Samtals:............................. 14,4
Heimild: www.heimur.is
í þessari tekjuáætlun eru Norðurljós (dagblöð og ljósvaka-
miðlar) með markaðshlutdeild upp á 39% sé miðað við allan
fjiilmiðlamarkaðinn. Þau eru hins vegar með 47% sé miðað við
samanlagðan markað dagblaða og ljósvakamiðla, þ.e. Norður-
ljós, RÚV, Arvakur og Skjár 1.
HUE MIKIÐ AUGLÝSA STÚRMARKAÐIR?
Haugkaup auglýsir mest allra stórmarkaða
Hagkaup............................... 21,5%
Kringlan ............................. 10,6%
Nóatún ............................... 10,5%
Smáralind ............................ 10,3%
Bónus ................................. 8,8%
Nettó ................................. 6,5%
Krónan ................................ 5,3%
Europris .............................. 4,9%
11-11.................................. 4,7%
10-11.................................. 3,3%
Fjarðarkaup............................ 3,3%
Samtals:............................. 89,7%
Heimild: Gagnagrunnur IMG
24