Ármann - 01.04.1959, Blaðsíða 46
fyrst í meistaraflokki karla, II. og III.
flokkur bættust við 1945. Sama ár er
Ármann frumherji að stofnun Reykja-
víkurmótsins, og hélt það ásamt Val
fyrstu árin. Árið 1947 tekur Ármann á
móti fyrsta erlenda handknattleikslið-
inu, sem hingað kom, I.F.K. Kristian-
stad frá Svíþjóð, en það var eitt sterk-
asta handknattleikslið á Norðurlönd-
um á þeim tíma. f september 1949 fer
Ármann fyrstu utanförina, sem farin
er af íslenzku liði, og keppti þá m. a.
sem gestur í höfuðborgakeppni Norð-
urlanda og urðu nr. 4, unnu Oslo. Og
loks árið 1950 er Jólamót Ármanns
stofnað. Var það hraðkeppni í meist-
araflokki karla og kvenna og var leik-
ið með 6 manna liði.
Margir af beztu handknattleiks-
mönnum landsins hafa leikið með Ár-
manni á undanförnum árum og í fyrstu
för íslenzka landsliðsins til Svíþjóðar
og Danmerkur átti Ármann 7 af þeim
15 er förina fóru.
Þrátt fyrir marga stóra og glæsilega
sigra hefur starfið innan deildarinnar
gengið upp og niður. Sterkir flokkar
hafa komið fram á sjónarsviðið og
virzt ósigrandi, en alltaf þarf að vera
að byggja upp, því ekkert félag getur
staðið lengi í fremstu röð án þess að
hafa alltaf nóg af ungu fólki til að
taka við af þeim eldri.
En það má með sanni segja, að
aldrei hefur verið hægt að líta jafn-
björtum augum fram á veg hjá deild-
inni og einmitt í dag. Milli 120 og 140
félagar æfa nú að staðaldri hjá deild-
inni, og er langmestur hlutinn í yngri
flokkunum. Núverandi þjálfarar hjá
deildinni eru þeir Stefán Kristjánsson,
Hallgrímur Sveinsson og Björn Krist-
mundsson.
Á næsta ári verður handknattleiks-
deildin 20 ára og hefur stjórn deildar-
innar mikinn hug á að gefa út afmælis-
rit tileinkað handknattleiksdeildinni,
og mun ég því láta ýmislegt, sem fram
I. FLOKKUR 1959. Reykjavíkurmeistarar. Frá v.: Árni Samúelsson, Jón Jónsson, Signrjón
Yngvason, Björn Krislmundsson, jyrirliði, Þorgeir Úlafsson, Hans Guðmundsson og Hörður
Kristinsson.
2. fl. B Í9J9- Rvk.
meistarar. Fremri
röð frá v.: Davið
Jónsson, Jóbann
Jónsson, Grímur
V aldimarsson.
Aftari röð frá v.:
Hörður Kristins-
son, Árni Samúcls-
son, Hans Guð-
mundsson, fyrir-
liði og Lúðvíg
Lúðvigsson.
46
ÁRMANN