Ármann - 01.04.1959, Blaðsíða 57
sundfélag í Reykjavík“, og Ármenn-
ingar eru bæði íslands- og Reykjavík-
urmeistarar í sundknattleik, og hefur
það verið okkar sérgrein síðan 1940.
Hefur sá árangur jafnan verið okkar
stolt, og lögð hefur verið mikil áherzla
á að eiga ávallt sem sterkast lið.
Tvær sundkonur okkar hafa verið
heiðraðar af l.S.l. fyrir að setja 10 met
á einu ári, og önnur meira að segja tvö
ár í röð, Ágústa Þorsteinsdóttir. í dag
eiga Ármenningar 29 af 56 skráðum ís-
lenzkum metum.
En að baki öllum þessum metum og
sigrum liggur mikil vinna, sem þjálfar-
ar okkar eiga stóran þátt í. Fyrstu árin
þjálfaði Ólafur Pálsson, þá Þorsteinn
Hjálmarsson og núna Ernst Backman.
Þessir menn eiga sinn mikla þátt í
sigurgöngu og stórveldi sunddeildar
Ármanns.
Snnddeild.
Ármanns
‘959
Þessi upptalning er að mörgu leyti
glæsileg, en engin ástæða er að horfa á
slíkt. Framundan bíða nú mörg verk-
efni, og sigurinn hefst aðeins með
þrotlausri vinnu. Takmark íþróttanna
er ekki eingöngu að ná sem beztum
árangri, heldur að rækta líkamann,
svo að hann verði betur undir það bú-
inn að standa sig vel í keppni lífsins.
Sunddeild Ármanns er ákveðin að
halda áfram á sömu braut og hingað
SUNDKNATTLEIKUR. Rvk.- og tslandsmeistarar 1958. Fremri röð frá v.: Einar Hjartarson,
Stefán Jóhannsson, Sigurjón Guðjónsson, fyrirliði, Guðjón Ölafsson, Ölafur Diðriksson. Aftari
röð frá v.: Ragnar Vignir, Pétur Kristjánsson, Ölafur Guðmundsson, Sólon Sigurðsson og Sig-
geir Siggeirsson. Ármann hefur sigrað í 19 lslandsmótum af 21, og ij Rvk.mót hafa unnizt af
19, sem frarn hafa farið.
ÁRMANN
57