Ármann - 01.04.1959, Blaðsíða 45
Jóhannesdóttir, Margrét Ólafsdóttir,
Svava Jóhannesdóttir, Fanney Hall-
dórsdóttir, Guðný Þorvarðardóttir og
Ragnheiður Böðvarsdóttir. Ármanns-
stúlkurnar voru næstum einráðar í
handknattleik á næstu árum og urðu
samfellt íslandsmeistarar til ársins
1945 er Haukar unnu titilinn.
Karlaflokkarnir byrjuðu að æfa í
kringum 1940 og var aðalhvatamaður-
inn Sigurður Norðdahl og hans stoð
og stytta var Sören Langvad. Ekki
byrjaði sigurbrautin jafnfljótt hjá
karlaflokkunum og hjá kvenfólkinu,
en árið 1942 verður II. flokkur karla
Islandsmeistari. Á árinu 1945 fer fyrst
að kveða verulega að Ármanni. Þá
vannst Islandsmeistaratitillinn í meist-
araflokki karla og á Reykjavíkurmót-
inu um haustið vinnast allir flokkar
nema meistaraflokkur. Frá því að
keppni hófst innanhúss árið 1940 og
allt til þessa dags hefur Ármann alltaf
átt að minnsta kosti eitt lið á verð-
launapallinum, bæði á Islands- og
Rcykjavíkurmeistaramótunum innan-
húss. Eftirfarandi tafla sýnir árangra
einstakra flokka í Reykjavíkur- og ís-
landsmótunum innanhúss.
Rcykjavíkurmót fslandsmót
M.fl. kvcnna unnið 6 af 13 unnið 10 af 19
II. fl. kvcnna - 7 -12 - 5-11
M.fl. karla - 3 - 13 - 5-19
I. fl. karla - 6 - 13 - 5-17
II. fl. karla - 5 - 13 - 3-19
III. f). karla - 2 - 13 - 4-12
Samtals unnið 29 af 77 unnið 32 af 97
Þeir félagar er stofnuðu deildina
fóru fljótt að láta að sér kveða á fram-
kvæmdasviðinu og var Sigurður Norð-
dahl þar fremstur í flokki. Árið 1941
standa þeir fyrir 1. handknattleiks-
meistaramóti Islands utanhúss og var
þá.leikið með 11 manna liði. 1943 stofna
þeir hraðkeppni Ármanns utanhúss
með 7 manna liði og fór hún fram ár-
lega á uppstigningardag fram til 1950,
REYKJAVÍKURMEISTARAR 5. FLOKKS ÁRIÐ 1956.
Fremrl röd frá v.: Franz Jesorzky, Jens Kristleifsson og Sigurjón Yngvason. Aftari röd frá v.:
Jens Gudbjörnsson, Ingjaldur Bogason, Hallgrímur Sveinsson, fyrirlidi, Halldór Ingólfsson,
Fridrik Hróbjartsson, Ingvar Sigurbjörnsson og Stefán Gunnarsson. Kjarni þessa liðs myndar i.
flokk, sem vard Reykjavikurmeistari 1958.
ÍSLANDSMEISTARAR 3. FLOKKS 1957 OG 1958.
Fremri röð frá v.: Guðmundur Ólafsson, Hans Gudmundsson, Brynjólfur Björnsson, Helgi
Gústafsson og Steinn Lárusson. Aftari röð frá v.: Hallgrimur Sveinsson, þjálfari, Davíð Helga-
son, Árni Samúelsson, Davíð Jónsson, Grímttr Valdimarsson, fyrirliði og Stefán Gunnarsson
formaður Handknattleiksd.
ÁRMANN
45