Morgunn


Morgunn - 01.12.1964, Page 5

Morgunn - 01.12.1964, Page 5
MORGUNN 83 við höfum fundið upp. Eigi að siður eru þessi ófullkomnu skynfæri okkar dýrmæt hjálp i daglegu lífi. Því hefur löngum verið trúað, og margir trúa því statt og stöðugt enn, að ekki sé unnt að skynja neitt nema eft- ir hinum venjulegu leiðum skynfæranna. Ekkert sé að marka nema það, sem menn geti séð og heyrt eða þreif- að á. Samt sem áður er það nú svo, að frá elztu tímum og fram á þennan dag hafa verið til menn, sem fullyrða, að þeir hafi orðið eins og annars áskynja, án þess að sú vitneskja hafi til þeirra borizt í gegn um hin venjulegu og viðurkenndu skynfæri. Þessar skynjanir hafa einu nafni verið nefndar sálræn eða dulræn fyrirbæri. Þau eru mjög fjölbreytilegra tegunda og einnig mjög algeng. Það mun vandfundinn sá maður, sem kominn er fram yfir miðjan aldur, sem ekki telur sig hafa orðið einhvers var- an af þessu tagi. Skal nú í örstuttu máli drepið á helztu tegundir þessara fyrirbæra. 1. Skyggni eða ófreskigáfa. Fjöldi manna er skyggn, sem kallað er. Þeir sjá eitt og annað, sem aðrir ekki verða varir við, þótt þeir standi fast hjá þeim. Þeir sjá verur eða svipi, sem ýmist bregður fyrir eða þeir geta séð þá alllengi í senn. Þeir lýsa þessum vei’um greinilega, svo aðrir þekkja af lýsingunni, að þetta er fóik, sem löngu er dáið, en þeir kannast mætavel við. Sumir virðast vera í venjulegu vökuástandi, þegar þessar sýnir ber fyrir þá. Aðrir, og þá einkum hinir svonefndu miðlar, eru í ómeð- vitandi eða hálfmeðvitandi ástandi, þegar þeir eru að lýsa framliðnu fólki, segja til um nöfn þess, heyra það jafnvei tala og flytja fundargestum frá því ýmis skilaboð, segja frá löngu liðnum atvikum úr ævi þess og lýsa þeim stöð- Um og því umhverfi, þar sem það átti heima á meðan það lifði á jörðinni. Oft er hægt að ganga úr skugga um það, að miðillinn hafði aldrei séð þetta fólk á meðan það lifði né haft nein kynni af ævi þess og kjörum. 2. Dulheyrnir (clairaudience). Svo er það nefnt, er menn heyra raddir, annarleg hljóð, umgang, högg og þess
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.