Morgunn - 01.12.1964, Side 9
MORGUNN
87
um fyrirbærum og verður ekki skilgreindur án þess að
hafa þau sérstaklega í huga.
Spiritismi er engan veginn nein trúarstefna og spirit-
istar fjarri því að vera nokkur sértrúarflokkur. Spiritism-
inn er rökstudd tilgáta til skýringar á hinum dulrænu
fyrirbœrum, eðli þeirra og orsökum, og þeir menn nefnd-
ir spiritistar, sem þá tilgátu aðhyllast. Að því leyti gegn-
ir um hann sama máli og materialismann, sem einnig er
rökstudd tilgáta til skýringar á fyrirbærum efnisheims-
ins, og þeir nefndir materialistar, sem þá tilgátu telja
rétta. Hins vegar eru þessar tvær tilgátur að verulegu
leyti fullkomnar andstæður.
Spiritisminn, eins og hver önnur vísindaleg tilgáta, er
að sjálfsögðu reistur á löngum og ítarlegum rannsóknum
þeirra fyrirbæra, sem hann á að skýra. Sú rannsókn hófst
fyrir alvöru með stofnun Brezka sálarrannsóknafélagsins
árið 1882, og þeim hefur síðan verið haldið áfram víðs-
vegar um hinn menntaða heim og að þeim hafa unnið
margir heimsfrægir vísindamenn, sem notið hafa óskor-
aðs trausts og virðingar. I þessu sambandi er rétt og skylt
að geta þess, að rannsóknir dulrænna og sálrænna fyrir-
bæra hafa jöfnum höndum verið framkvæmdar bæði af
þeim, sem aðhyllzt hafa skýringar spiritista, og öðrum,
sem hafa lýst sig beinlínis andvíga þeim skýringum. Sál-
arrannsóknir og spiritismi eru því sitt hvað, enda þótt
sumum hætti til að grauta þessu saman.
Hvað er þá spiritismi og hverjar eru þær skýringar,
sem spiritistar halda fram varðandi hin dulrænu fyrir-
bæri?
Skoðun spiritista á hinum dulrænu fyrirbærum er í
stuttu máli sú, að bæði fyrirbærin sem heild og mörg hin
einstöku þeirra séu þannig, að ekki sé unnt að skýra þau
á annan hátt en þann, að þau stafi frá framliðnum mönn-
um, að persónuleiki mannsins lifi eftir líkamsdauðann og
geti, þegar hagstæð skilyrði eru fyrir hendi, komizt í sam-
band við þá, sem lifa hér á jörð. Þeir aðhyllast þá skoðun