Morgunn


Morgunn - 01.12.1964, Síða 13

Morgunn - 01.12.1964, Síða 13
MORGUNN 91 — Ég man vel eftir þessu, segir þú. — Sagði hann nokkuð fleira? — Hann bað mig fyrir skilaboð til þín, segi ég. — Hann sagðist ekki vilja, að þú létir myndina af henni mömmu ykkar sálugu liggja lengur í kommóðuskúffunni. — Nei! Nú gengur alveg fram af mér. Þú hefur ekki aðeins hitt hann Sigurjón, heldur hefur hann sagt þér það, sem enginn lifandi maður vissi, nema ég. Myndin af mömmu datt niður af skápnum fyrir nokkrum dögum og glerið í rammanum brotnaði. Ég lét hana þá niður í komm- óðuskúffuna og hef bara ekkert munað eftir henni síðan. Ég hef valið hér að vísu tilbúna, en þó mjög algenga og hversdagslega mynd af því, sem þráfaldlega kemur fram á fundum með sæmilega góðum miðlum. Og í ein- stökum tilfellum hafa komið fram miklu fleiri og veiga- meiri atriði til sönnunar kenningum spiritista um fram- haldslífið. Það er ekki nema sjálf.sagt og eðlilegt, að menn fari varlega í það að láta sannfærast af einu dæmi, hvort heldur í eigin reynslu eða stutt af vottfestum frásögnum annarra, jafnvel þótt hið sterkasta sannanagildi hafi. En þegar slík dæmi skipta þúsundum og þegar sams konar reynsia einstaklinganna endurtekst ár eftir ár og um alda- raðir, þá fer að verða erfitt að neita svo mörgum stað- reyndum. Og ég hygg, satt að segja, að sannanirnar fyrir framhaldslífi og sambandi við látna vini séu þegar orðn- ar svo margar og sterkar, að fyllri sannana krefjumst við yfirleitt ekki á öðrum sviðum fyrir sanngildi hlut. anna. Gcignrýni andstœöinga spíritismans. Nú er það hvorki rétt né sanngjarnt, þegar rætt er um skýringar spiritista á dulrænum fyrirbrigðum, að geta ekki einnig að nokkru um þær skýringar, sem andstæð- ingar spiritismans hafa borið fram.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.