Morgunn - 01.12.1964, Blaðsíða 17
MORGUNN
95
Ég byrjaði með því að minnast á bílinn minn, og ég
ætla að enda með því að segja frá öðrum bíl og litla sögu
í sambandi við hann, er vera mætti táknræn um viðhorf
spiritismans varðandi framhaldslífið og samband sálar og
líkama.
Ég stóð við stofugluggann heima ásamt konunni minni.
Þá sjáum við allt í einu, að bíll kemur eftir götunni og
nemur skyndilega staðar við garðshliðið. Hann hafði
raunar ekið mjög gætilega, sveigt úr vegi fyrir öðrum
bíl og flautað á krakka, sem álpazt hafði út á götuna.
Nú stóð hann þarna grafkyrr við hliðið og virtist með
öllu dautt á vélinni og á rúðinni var einhver móða, svo
við sáum ekki bílstjórann í gegn um hana.
— Hvað á nú þetta að þýða? segi ég. — Bíllinn stend-
ur þarna eins og klettur á miðri götu, og enginn bílstjóri
sjáanlegur. Varla hefur bíllinn ekið alveg sjálfkrafa og
haft jafnframt vit á því að víkja úr vegi og flauta á
krakkann?
Konan mín brosir og finnst þetta víst ekki svara vert.
En nú er ég orðinn æstur. Ekki dugir að láta bílinn
vera þarna lengi, á miðri götu. Svo ég segi við konuna:
— Komdu með mér og gáum að, hvort nokkur bíl-
stjóri er í bílnum.
Við leggjum af stað. Og viti menn! Bílstjórinn sést
hvergi. Steindautt á vélinni og bíllinn orðinn kaldur.
— Þarna sérðu! segi ég. — Það hefur enginn bílstjóri
verið í bílnum. Hann er ekki til.
En þá brosir konan mín aftur og segir:
— Mikið barn ertu! Bílstjórinn hefur bara farið úr
bílnum og skilið hann eftir, vegna þess að eitthvað hefur
bilað í vélinni og hann ekki komið honum í gang
Ég held satt að segja, að hún hafi haft rétt að mæla,
átt að minnsta kosti sennilegustu tilgátuna. Haldið þið
það ekki lika?