Morgunn - 01.12.1964, Page 45
MORGUNN
123
Að endingu vil ég segja frá einu dæmi um sálfarir í
dáleiðslu. Er það vottfest skýrsla um tilraun, sem dr. J.
Björkhem gjörði hinn 3. nóvember 1934. Dr. Björkhem
er sænskur dulsálfræðingur (parapsycholog), sem nýtur
mjög mikils álits og hefur skrifað fjölda bóka um heim-
speki, guðfræði og sálarfræði, enda er hann doktor bæði
i heimspeki og guðfræði og ennfremur læknir. Hann hef-
ur lengi haft mikinn áhuga á dulfvrirbærum og gert f jölda
tilrauna á þeim sviðum.
Kona sú, sem dáleidd var og dr. Björkhem nefnir frö-
ken K, var miðaldra kona, ógift og stundaði sauma. Við
fyrri tilraunir hafði komið í ljós, að mjög auðvelt. var að
dáleiða þessa konu, og í dásvefninum virtust skynfæri
hennar skerpast til muna. Heyrnin varð næmari og til-
finningaskynið sterkara. Sama var að segja um minnið.
Hún hefur drjúgum meiri áhuga á saumum en sálarfræði.
Eigi að síður er hún jafnan fús að taka þátt í tilraunum
°g láta dáleiða sig og leggur sig fram eftir beztu getu.
Enga vitneskju hafði hún um það fyrirfram, í hverju þessi
tilraun mundi verða fólgin.
Tilraunin hófst um sjöleytið að kvöldi. Staður var val-
inn i G-götu 16, en það er allhátt hús, og var vinnustofa
sú, sem valin var til tilraunarinnar, hátt uppi í húsinu.
Starfaði þar ágætur maður og vanur tilraunum að nafni
E. G. Var hann viðstaddur og ritaði fundargerðina. Dr.
Björkhem segir, að þeir hafi orðið samferða upp stigann,
°g hafi hann þá á leiðinni tekið eftir nafnspjaldi á hurð
einni og voru upphafsstafirnir A. W. Björkhem spurði E.G.
hvort hann kannaðist nokkuð við þennan A. W. Kvaðst
hann þekkja hann lítið eitt og hafa einu sinni komið inn
1 íbúð hans. Væri hann kennari og rithöfundur, hefði víða
^arið, athugull maður og áreiðanlegur. Réðist það þarna
a stundinni, að tilrauninni skyldi haga á þá lund, að þegar
Höken K væri sofnuð, skyldi hún send niður í íbúð þessa
rnanns sálförum. Kvaðst E.G. fullviss um, að A.W. mundi