Morgunn - 01.12.1964, Page 49
MORGUNN
127
á borðinu, til þess að vita, hvort þreifiskyn hennar væri
í lagi. Er harla athyglisvert, að þá finnur hún, að platan
er úr gleri. Hún mun ekki hafa vitað, að glerplötur væru
stundum hafðar á skrifborðum. Þess vegna heldur hún,
að þetta kunni að vera teborð.
Til þess að taka öldungis af skarið um það, að hér væri
um sálfarir að ræða, en ekki fjarskyggni aðeins, og stúlk-
an hefði sýnilega verið inni í íbúðinni, var henni sagt að
taka bókina úr skápnum og leggja hana á borðið. Ekki
hefur fengizt staðfesting hr. W. á því, að þetta hafi tekizt.
Það er hins vegar rétt, að hr. W. fór úr íbúðinni um sjö-
leytið þetta kvöld.
Dr. Björkhem segir að lokum, að hann telji tilraun þessa
hafa heppnazt öllum vonum betur, upplýsingarnar hafi
yfirleitt reynzt réttar og langt umfram það, sem orðið
hefði, ef um getgátur einar hefði verið að ræða. Tekur
hann réttilega fram, að tilraunin hefði í margra augum
orðið tortryggilegri, ef allt hefði verið rétt, sem hin dá-
leidda stúlka sagði. Sumt af því, sem fröken K. sá inni
i íbúðinni, er engan veginn algengt að hitta fyrir á heim-
ilum manna. Má þar meðal annars nefna hillurnar tvær
i fordyrinu og hvernig þeim er fyrir komið, frágang speg-
ilsins á hurðinni, glerið á skrifborðinu, Lagasafnið í bóka-
skápnum o. fl.
Að lokum farast dr. Björkhem orð á þessa leið:
,,Niðurstaða þessarar tilraunar er þannig, að í fulln-
aðardómi um gildi hennar verður að nema staðar við þá
staðreynd, að nokkur eru þau atriði, að því er bezt verð-
Ul' séð, sem frá vísindalegu sjónarmiði nútímans verða
ekki skýrð án þess að taka tillit til hæfileika og afla í
sálarlífi manna, sem starfa utan þess sviðs, sem við þekkj-
um. Með öðrum orðum: Þau sýna, að sálfarir og dul-
skyggni er til í raun og veru.
En þá erum vér lika komnir út yfir takmörk tíma og
rúms og stöndum bæði hálfsmeykir og hugfangnir frammi