Morgunn


Morgunn - 01.06.1968, Side 28

Morgunn - 01.06.1968, Side 28
22 MORGUNN Ævi þessa manns var óvenju viðburðarík og á köflum líkari skáldsögu en raunveruleik. M. a. vann hann með Sir Arthur Conan Doyle og Sir Oliver Lodge að því að koma á þeim starfsháttum hjá atvinnumiðlum, að þeir stæðust ströngustu gagnrýni. Er það til marks um hæfileika hans í þeim efnum, að hann sannfærði strangasta gagnrýnanda sinn sem miðil, er ráðizt hafði harkalega á hann í ræðu og riti, sjónhverfingamanninn Howard Thurston, sem að lok- inni rannsókn lýsti því yfir, að hann teldi hann áreiðanlegan útskýranda sambands við framliðna. Enda hlaut hann einnig viðurkenningu frægra háskólamanna og lærdóms- manna. Nafn hans er Arthur Ford. Hann hefur í samvinnu við rithöfundinn Marguarite Harmon Bro ritað ævisögu sína, sem á frummálinu heitir nothing so stramge, en þýdd hefur verið á íslenzku af séra Sveini Víkingi og hlotið ís- lenzka nafnið undrið mikla. Bókin er heillandi lestur, enda hefur hinn heimskunni skáldsagnarithöfundur Upton Sin- clair kallað hana „frábæra bók eftir frábæran mann.“ Já, þannig hófst Arthur Ford á annan bóginn til virðing- ar og frægðar í lífinu, en á hinn bóginn beið hans líka að kanna hyldýpi örvæntingar og þjáninga. Ég hygg, að andstreymi það, sem menn verða fyrir í lif- inu sé tvenns konar. Annars vegar það, sem leiðir af röngu líferni, ástundun lasta og ills hugarfars, og hins vegar and- streymi, sem í fljótu bragði séð ekki virðist vera í samræmi við neitt réttlæti. Við þekkjum öll einhver dæmi um fólk, sem lánið virðist leika við í svo að segja hverju sem það tek- ur sér fyrir hendur, og hins vegar manneskjur, sem ólánið og óheppnin virðist bókstaflega leggja í einelti. Hefur hið síðarnefnda, ásamt heljarböli styrjaldanna, vafalaust átt drjúgan þátt i hinni gífurlegu bölsýni, sem einkennir verk margra nútíma rithöfunda. Heimspeki og trúarbrögð Aust- urlanda hafa fyrir löngu fyrir sitt leyti útskýrt þetta að því er virðist tilefnislausa böl. Er það gert með kenningunni um endurholdgun og lögmáli orsaka og afleiðinga (karma). Okkur er þar sagt, að sumt af andstreymi mannsins séu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.