Morgunn - 01.06.1968, Page 54
48
MORGUNN
og hún af honum. Þau hafa verið eitthvað meira kunnug en
almennt gerist, eitthvað nánar“.
„Kannastu ekki við þessa stúlku?“ spurði Jakob mig.
„Nei, ég get ekki munað eftir henni að svo stöddu“, svaraði
ég. „Hann er ei að síður ákveðinn í að sýna mér hana og
biðja mig að lýsa henni“, svaraði Jakob aftur. „Ef til vill
getur þú fengið einhverjar frekari upplýsingar um hana“,
mælti ég. „Er hún lifandi eða dáin stúlka?“ spurði ég. „Hún
er bráðlifandi", svaraði Jakob. „Hann sýnir mér hana í
sama umhverfi og foreldra sína, þ. e. a. s., ég sé það venju-
lega strax, hvort þeir, sem ég sé, eru farnir yfir um, eða
þeir eru lifandi, eins og þið kallið það, það kemur öðru vísi
út. En þessi stúlka átti áreiðanlega ekki heima hjá fólkinu
hans, heldur miklu lengra burtu, og ég held hann sé að
segja, að hún hafi aldrei komið heim til hans, ég heyri það
áreiðanlega rétt.
Hann segir, að þetta sé allt rétt hjá sér, og hann þykist
bara hróðugur að hafa komið með þetta atriði. Kannastu
ekki við þetta?“ spurði Jakob. „Nei, því fer fjarri“, svaraði
ég, „mér er ómögulegt að botna í því, og í stuttu máli, mér
finnst þetta vera afar ósennilegt“.
„Jæja, hvernig sem þetta er lagað, þá verður honum ekki
hvikað frá því, að þetta sé rétt hjá sér“, mælti Jakob. „Get-
urðu ekki komizt að því síðar, hvort þetta er rétt, og látið
mig þá vita?“ spurði Jakob mig. „Ef til vill“, svaraði ég, „en
ég hef enga trú á því, að þetta sé rétt; ég þekkti hann og
fólk hans vel og hef aldrei orðið áskynja um neitt slíkt“,
svaraði ég.
„Hann fer nú dálítið lengra með mig“, hélt Jakob áfram.
„Við erum komnir þarna að húsi, það er ekki hátt, en glugg-
amir eru nokkuð stórir. Það hefur ekki verið búið í því, en
stundum hefur fólk safnazt þarna saman. Það hefur áreið-
anlega komið þarna í einhverjum tilgangi. Það bæði talar
þarna og syngur, er það kemur saman. Það hefur verið ein-
hver félagsskapur þarna, og hann hefur eitthvað verið við
hann riðinn. Ég held þeir hafi stundum glímt þarna og
j