Morgunn


Morgunn - 01.06.1968, Blaðsíða 54

Morgunn - 01.06.1968, Blaðsíða 54
48 MORGUNN og hún af honum. Þau hafa verið eitthvað meira kunnug en almennt gerist, eitthvað nánar“. „Kannastu ekki við þessa stúlku?“ spurði Jakob mig. „Nei, ég get ekki munað eftir henni að svo stöddu“, svaraði ég. „Hann er ei að síður ákveðinn í að sýna mér hana og biðja mig að lýsa henni“, svaraði Jakob aftur. „Ef til vill getur þú fengið einhverjar frekari upplýsingar um hana“, mælti ég. „Er hún lifandi eða dáin stúlka?“ spurði ég. „Hún er bráðlifandi", svaraði Jakob. „Hann sýnir mér hana í sama umhverfi og foreldra sína, þ. e. a. s., ég sé það venju- lega strax, hvort þeir, sem ég sé, eru farnir yfir um, eða þeir eru lifandi, eins og þið kallið það, það kemur öðru vísi út. En þessi stúlka átti áreiðanlega ekki heima hjá fólkinu hans, heldur miklu lengra burtu, og ég held hann sé að segja, að hún hafi aldrei komið heim til hans, ég heyri það áreiðanlega rétt. Hann segir, að þetta sé allt rétt hjá sér, og hann þykist bara hróðugur að hafa komið með þetta atriði. Kannastu ekki við þetta?“ spurði Jakob. „Nei, því fer fjarri“, svaraði ég, „mér er ómögulegt að botna í því, og í stuttu máli, mér finnst þetta vera afar ósennilegt“. „Jæja, hvernig sem þetta er lagað, þá verður honum ekki hvikað frá því, að þetta sé rétt hjá sér“, mælti Jakob. „Get- urðu ekki komizt að því síðar, hvort þetta er rétt, og látið mig þá vita?“ spurði Jakob mig. „Ef til vill“, svaraði ég, „en ég hef enga trú á því, að þetta sé rétt; ég þekkti hann og fólk hans vel og hef aldrei orðið áskynja um neitt slíkt“, svaraði ég. „Hann fer nú dálítið lengra með mig“, hélt Jakob áfram. „Við erum komnir þarna að húsi, það er ekki hátt, en glugg- amir eru nokkuð stórir. Það hefur ekki verið búið í því, en stundum hefur fólk safnazt þarna saman. Það hefur áreið- anlega komið þarna í einhverjum tilgangi. Það bæði talar þarna og syngur, er það kemur saman. Það hefur verið ein- hver félagsskapur þarna, og hann hefur eitthvað verið við hann riðinn. Ég held þeir hafi stundum glímt þarna og j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.