Morgunn - 01.06.1968, Síða 63
MORGUNN
57
Það átti heima, og það jafnvel þó þau hús séu nú löngu rif-
in og jöfnuð við jörðu.
Og nú er eðiilegt að þið spyrjið: Hvernig fær miðillinn
Þessa vitneskju, vitneskju, sem ég hygg, að mörg ykkar
niuni verða að viðurkenna, að sé sönn og rétt, svo langt sem
hún nær? Svörin við því eru mörg og harla mismunandi og
niótast að verulegu leyti af persónulegu viðhorfi einstakl-
mgsins til sálarrannsóknanna yfirleitt og trú þeirra eða trú-
ieysi á framhaldslífið og sambandið við þá, sem látnir eru.
Það er mjög eðlilegt, að menn spyrji um það sem þeir ekki
vita. AUa þekkingu okkar á tilverunni höfum við smátt og
smátt verið að öðlast, einmitt vegna þess að við erum sí-
sPyrjandi og síleitandi að svörum. Það er auðvelt að spyrja.
En hitt er erfitt og mikill vandi, að leita að hinum réttu og
hyggjandi svörum og finna þau. Og sá vandi er ef til vill
allra mestur að því er snertir þær spurningarnar, sem ég
tel okkur allra mestu varða, en það eru spurningarnar um
Það, hvað við í raun og veru erum, hvort við erum aðeins
dægurflugur á þessari jörð, dauðanum og eyðingunni ofur-
SeW, eða ódauðlegar sálir, sem eigum að erfa lífið í æðri
fyllingu eftir líkamsdauðann, og getum jafnvel í þessu lífi
nað sambandi við þá, sem farnir eru á undan okkur héðan.
Ofstæki og fljótfærni eru oftast fljót til svars, en þeirra
ern sjaldan hin réttu svörin. Þau fást ekki nema fyrir rólega
°g gaumgæfilega athugun, ekki heldur í þessum málum. Sú
athugun hefur þegar leitt alveg ótvírætt í ljós, að ekki að-
ems skyggnigáfan, heldur hin dulrænu fyrirbæri yfirleitt
benda sjálf alveg eindregið á framhaldslíf eftir líkamsdauð-
ann. Það er sú skýring, sem liggur lang beinast við. Allar
aðrar skýringar, sem fram hafa komið, eru hvorttveggja í
Senn langsóttari og ósennilegri, enda þótt rétt sé og skylt
að gefa þeim einnig fullan gaum.
Skynsamlegasta afstaða okkar til þessara mála nú, er án
efa sú, að kynna okkur þau sem vendilegast, fordómalaust
°g með fullri stillingu og gát. Slíkt er og hefur jafnan verið
vænlegasta leiðin í leit að sannleikanum á hvaða sviði sem er.