Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Side 18

Morgunn - 01.06.1994, Side 18
MORGUNN Þegar ég kom út af næsta fundi sá ég að hann var kominn út í bílinn á undan mér. Hann var fölur og óttasleginn að sjá. „Veistu hvað náunginn sagði við mig?“ „Nei. Hvað?“ En John sagði mér það ekki. „Hvernig vita þeir alla þessa hluti?“ Hvaða hluti?“ „O, ég trúði því varla hvemig hann gat vitað þetta allt. Ég fékk hroll um mig allann.“. „Hvað sagði hann eiginlega, John?“ „Já ég get svo sem sagt þér það að mér stóð sko ekki á sama. Ég fer sko aldrei aftur þangað, það get ég sko sagt þér. Hann vildi bara tala um hvemig hann brást við þessari reynslu en ekki það sem átti sér í raun og veru stað. „Ég skil ekki hvers vegna þér líkar við þetta“ sagði hann svo seinna. „Ég skil ekki afhverju þér líkar það ekki“ sagði ég. Ég skildi ekki viðbrögð hans. Ég hefði skilið efasemdir eða áhugaleysi. En hræðslu? Nokkrum dögum síðar gaf hann mér vísbendingu. Við vorum á leið út í upptökusalinn og þá segir hann: „Ef ég á að segja eins og er þá kæri ég mig ekki um að vita það mikið um sjálfan mig. Og ég kæri mig ekki um að einhver annar viti það.“ Svo þetta var það sem hann óttaðist. Það var óttinn við að verða sýnilegur. Óttinn við innrás inn í einkalífið. Óttinn við að leyndarmál eða veikleikar verði opinberaðir og óttinn við hvað framtíðin ber í skauti sér. / / Eg gat skilið það. Eg minntist þess þegar ég hitti geðlækni í fyrsta sinn. Hann var faðir stelpu sem ég þekkti á háskóla- árunum og ég sat við hliðina á honum við matarborðið. Ég vildi ekki opna munninn allt kvöldið, því ég hugsaði sem svo, að ef ég segði eitthvað, þá myndi hann sjá strax í gegnum mig. Hann myndi þá sjá að ég væri grunnur, kynóður og djúpt ruglaður ungur maður. Þess vegna opnaði ég ekki munninn. 16

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.