Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Blaðsíða 26

Morgunn - 01.06.1994, Blaðsíða 26
MORGUNN Haraldur tók virkan þátt í kirkjulegu starfi og guðfræðilegum umræðum um aldamótin og hann fylgdist einnig með og tók virkan þátt í félags- og menningarlífi í Reykjavík. Eins og nánar verður greint frá í þessum erindum varð hann sannfærður um að spíritisminn væri raunverulegur möguleiki, sem mundi efla trúarlíf í landinu og styrkja kristna trú á þeim tímamótum sem aldamótin voru í þessu tilliti. En það voru ekki aðeins aðstæðumar í andlegu og félagslegu tilliti sem réðu svo miklu um sannfæringu hans varðandi spíritismann heldur einnig persónulegar aðstæður Haralds, þau vandamál sem hann var sjálfur að glíma við frá því að hann kom heim frá guðfræðinámi við Kaupmannahafnarháskóla árið 1897, og þar til hann lauk við þýðingu Gamlatestamentisins um það bil tíu árum seinna. Sá spíritismi sem hér um ræðir og sem útbreiddastur varð meðal þjóðarinnar var boðaður undir kristnum formerkjum fyrst og fremst. Leiðtogar hreyfingarinnar vildu efla og vekja kristna trú og verja hana árásum. Þessi spíritismi mótaði trúarskoðanir fjölda fólks, fólks sem sá ekki ósamræmi milli kenninga spíritista og kenninga kirkjunnar. Margir sem urðu fyrir áhrifum frá spíritismanum öðluðust nýja og sterkari trú á Krist og kenningar hans. I þessum erindum verður fjallað um þátt Haralds í upphafi og mótun spíritismans fram til þess að hann hóf predikunarstarf sitt í Fríkirkjunni í Reykjavík árið 1914. Stuðst verður við áður óbirt bréf úr skjalasafni Haralds og predikanir sem fundist hafa eftir hann frá því fyrir 1914. Þar er að finna ræður sem hann flutti sem guðfræðinemi í Kaupmannahöfn og ræður við guðsþjónustur í dómkirkjunni í Reykjavík svo og ræður sem hann hélt á lokuðum samkomum spíritista í Tilraunafélaginu svonefnda. Einnig verður stuðst við fundargerðir þess félags en það var þar sem spíritisminn eins og við þekkjum hann hér á landi varð til. Þar mótaðist Haraldur einnig sem guðfræðingur og má segja að þetta tímabil hafi verið undurbúningurinn að því predikunarstarfi sem hann varð 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.