Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Blaðsíða 28

Morgunn - 01.06.1994, Blaðsíða 28
MORGUNN spíritismanum efnivið í predikun sína meðan hún var enn á mótunarskeiði. Þær sýna hver áhrif spíritisminn hafði á lífsviðhorf hans og hin ýmsu svið guðfræðilegrar hugsunar hans, kirkjuskilning, kristsfræði og kenningar um fómarverk Krists og um upprisuna svo eitthvað sé nefnt. Guðsþjónustunum í Fríkirkjunni hefur verið lýst á eftifarandi hátt af Asmundi Guðmundssyni biskupi sem sjálfsagt hefur sótt þær á sínum tíma, en hann var nemandi Haralds og eftirmaður sem kennari við Háskólann: „Þessar „messur séra Haralds“, eins og þær voru oft nefndar, settu svip á bæinn. Fólkið streymdi að þeim í stórhópum, svo að oít urðu margir frá að hverfa. Það hlýddi hugfangið á hinn andríka kennimann, sem talaði betur og fegur en aðrir menn, brennandi í andanum. Þótt rödd hans væri veik og dálítið hás, þá heyrðist hvert orð, og eldmóðurinn og sannfæringarþrótturinn á bak við gerðu hana fallega. Kirkjan fylltist helgi og hrifningu og hjörtun tóku að brenna... Ahrifín af guðsþjónustunum náðu einnig víðar en um bæinn, því að aðkomumenn víðsvegar að tóku einnig þátt í þeim, og þannig bárust sterkir andlegir straumar um land allt...Fjöldi manns, sem áður hafði látið kristindóminn sig litlu eða engu skipta, hreifst nú með..“4 ✓ Ymsar þær predikanir sem Haraldur flutti í Fríkirkjunni birtust í / predikunarsöíhum hans undir heitinu: Arin og eilífðin, sem út komu í tveimur bindum árin 1920 og 1928. Þessar predikanir voru sums staðar notaðar til húslestra í sveitum meðan sá siður enn hélst. Einnig hafa ræður og predikanir eftir hann birst í bókunum Kirkjan og ódauðleikasannanirnar sem út komu 1916 og aftur 1919, Kristur og kirkjukenningarnar, sem út kom 1929 og Líjið og ódauðleikinn, sem út kom 1951. Einstaka fyrirlestrar og ræður hafa víðar birst á prenti og töluvert hefur verið þýtt eftir hann sérstaklega á norðurlandamálunum. Sá er þetta talar hefur t.d. rekist á nýlegar útgáfur af fyrirlestrum eltir hann á sænsku og portúgölsku. 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.