Morgunn - 01.06.1994, Page 43
MORGUNN
Ekki er ólíklegt að eitt af því sem vakti áhuga Haralds á
sálarrannsóknunum haíi verið andlegar lækningar sem stundaðar
voru með tilraunum um miðlasamband við annan heim. Til eru
blöð með óreglulegri skrift, sennilega skrifuð ósjálfrátt af miðli,
sem em eins konar læknisvottorð um heilsufar og mögulegan bata
Bergljótar. Eftir andlát hennar taldi Haraldur sig geta haft samband
við Bergljótu í gegnum miðil. Sjálf varð hún sannfærð um gildi
spíritismans og hefur hann eflaust orðið þeim hjónum huggun
hanrii í þótt ekki hlyti hún bata.
Trúarbarátta Haralds
Ástæðnanna fyrir því að Haraldur Níelsson varð spíritisti er, eins
og áður segir, bæði að leita í einkalífi hans og því ástandi sem ríkti
í trúar- og kirkjulífi landsmanna um aldamótin og hér hefur verið
minnst á. í tengslum við þýðingarvinnuna kynntist hann erlendum
straumum í guðfræði. Hann hlaut að styðjast við túlkunar-
sjónarmið þýsku biblíugagnrýninnar sem byggðu á viðurkenndum
sögulegum rannsóknum og það var ástæðan fyrir því að hann tók
að endurskoða þær kenningar og viðhorf sem honum höfðu verið
innrættar í guðfræðináminu í Kaupmannahöfin. Þá vaknaði efi hans
um réttmæti ýmissa kenninga kirkjunnar og gildi þeirra íýrir
kristna trú. Sjálfur lýsir hann þessu á eftirfarandi hátt síðar á
ævinni:
Þegar ég lít yfir liðið líf mitt, finnst mér trú minni aðeins hafa
verið hætta búin um eitt skeið. Það vom síðari árin, sem ég fékkst
við biblíuþýðinguna. Þá gerði ég þá uppgötvun, hve ófullkomin
bók biblían er, og hve afaiTöngum hugmyndum um hana hafði
verið komið inn hjá mér, jafnvel í sjálfri guðfræðideild
Kaupmannahafnarháskóla. Það er svo um oss flesta, að komi skrið
á sumt, þá finnst oss allt ætla að hrynja. Ég tók að efa jafnvel þær
41