Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Blaðsíða 31

Morgunn - 01.06.1994, Blaðsíða 31
MORGUNN menn sem lagfærðu hann [skólann]. Þó svo stæði á fyrir mér að ég gæti komið drengjunum mínum í skóla hræðist ég að hugsa til að láta þá þangað þess vegna, en það kemur nú líklega aldrei til þess. Við höfum ekki efni á því og svo veit ég ekki heldur hvort þeir hafa gáfur til þess. Það er helst sá yngsti. Hann heitir Haraldur. Hann er nú á níunda ári og við höfum haldið mann núna í 2 mánuði til að kenna yngstu bömunum og hefur honum gengið einna best að læra skrift og reikning.“6 I bréfum sínum til Jóns sem skrifuð voru eftir að Haraldur settist í Lærðaskólann segir hún frá Haraldi og því að hann sé iðinn og reglusamur og gangi vel í skólanum. Hann fékk þar einkum áhuga á stærðfræði og eðlisfræði enda geðjaðist honum einkar vel að þeim kennara sem sá um kennslu í þessum greinum.7 Eftir nám í Lærðaskólanum í Reykjavík sigldi hann til Kaup- mannahafnar eins og þá var algengt meðal íslenskra stúdenta og hóf hann nám í guðfræði. Ekki er að efa að móðurbróðir hans Hallgrímur Sveinsson biskup hefur eflt með honum áhuga á guðfræði og prestsstarfinu. Þegar Haraldur stundaði nám í Reykjavík átti hann athvarf á heimili Hallgríms biskups. Hallgrímur gekk Haraldi á margan hátt í föðurs stað eftir að Niels faðir hans lést 1885 og víst er um það að Haraldur mat þennan frænda sinn mikils og vildi allt til vinna að gera honum til hæfís. Augljóst er að Hallgrímur biskup hafði einnig dálæti á þessum frænda sínum og gerði það ekki endasleppt við hann eftir að stúdentsprófi var náð, heldur studdi hann með nokkm fjárframlagi til námsins í Kaupmannahöfn. Hann hafði einnig hönd í bagga með því að Haraldur var ráðinn af Biblíufélaginu til þess að gera nýja þýðingu að Gamla testamentinu. Synir Hallgríms, einkum Friðrik síðar dómkirkjuprestur, voru Haraldi sem bræður og trúnaðarvinir. A námsárum sínum í Kaumannahöfn tók Haraldur þátt í félagsskap íslenskra stúdenta, en hann lagði sig einnig eftir þátttöku í kristilegu starfi og kirkjulífi, sótti vel guðsþjónustur og 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.