Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Page 42

Morgunn - 01.06.1994, Page 42
MORGUNN en þar dvaldi hún þegar hún leitaði sér lækninga sumarið 1904 og naut mikils ástríkis af hálfu þeirra hjóna Eiríks og Sigríðar frænku sinnar, en þau hjón vom bamlaus og önnuðust þau Bergljótu eins og hún væri þeirra eigin dóttir. Bergljót hafði sem bam dvalið hjá þeim hjónum í Cambridge og vom miklir kærleikar með henni og þeim hjónum. Haraldur hafði kynnst Berljótu flótlega eftir heimkomuna frá Kaupmannahöfn. Af bréfunum sem til em má sjá að þar hefur orðið gagnkvæm ást við fyrstu sýn. Trúlofun sína gerðu þau opinbera haustið 1897 og streymdu til þeirra hamingjuóskir, enda fögnuðu fjölskyldur beggja þessum ráðahag. Meistari Eiríkur í Cambrigde fagnaði fréttunum ákaft þótt hann þekkti Harald þá ekki persónulega. En af afspum hafði hann mikið af mannkostum Haralds að segja. Hann skrifaði svila sínum föður Bergljótar, séra Sigurði Gunnarssyni í Stykkishólmi, og sagðist vita það frá þeim sem til þekktu að maðurinn væri góðum gáfum gæddur og góður námsmaður og hefði borið af löndum sínum sem stunduðu nám í Kaupmannahöfn lyrir siðprýði og spáði hann því að Haraldur yrði biskup. Framtíðin blasti við þessum ungu elskendum og þau gengu í hjónaband þegar Haraldur kom heim frá framhaldsnámi sumarið 1900. En skugga bar þó á framtíð þeirra sem brátt varð að þungu fargi fyrir þau bæði og heimilislíf þeirra, en það voru veikindi Bergljótar sem þegar fór að bera á nokkru eftir að hún kynntist Haraldi. Sjúkdómurinn var þá óþekktur hrömunarsjúkdómur sem læknar gátu ekki greint og læknisaðgerðir komu því að litlu gagni og gerðu aðgerðir þeirra stundum illt verra. Sumarið 1904 dvaldi hún á sjúkrahúsi í London eins og áður segir en læknisaðgerðin þar gaf engan varanlegan bata. Að lokum dró þessi sjúkdómur hana til dauða löngu fyrir aldur fram árið 1915. Átakanlegt er að lesa lýsingar þeirra ástvinanna á baráttunni við sjúkdóminn þar sem oft mátti merkja von um bata sem brást. Samlíf þeirra var þó ekki ein samfeld sjúkrasaga, því Bergljót var við sæmilega heilsu framanaf og ól manni sínum fimm böm. 40

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.