Morgunn - 01.06.1994, Page 45
MORGUNN
koma fram fyrirbæri sem höfðuðu sterkt til hans og allra þeirra sem
nærri þeim komu. Hann fór að stunda miðilsfundina reglulega og
reynsla hans af þeim olli straumhvörfum í lífi hans.
Hann lýsti því sjálfur þannig að spíritisminn hefði komið
„eins og ljósgeisli inn í líf sitt“," og að hugur hans hafi staðið
„opinn upp á gátt“ gagnvart spMtismanum J2 Líklegast er að þau
fyrirbrigði sem vöktu áhuga og síðar sannfæringu Haralds hafi
verið þau sem gerðust í sambandi við Indriða Indriðason, ungan
prentiðnaðamema hjá ísafoldarprentsmiðju. Það sem gerðist í
nálægð hans vakti verulegan áhuga þeirra sem höfðu fengist við
þessar tilraunir og til að geta kannað þau fyrirbæri nánar var
stofnað sérstakt félag, Tilraunafélagið haustið 1905 og voru
stofnendur þess um 30.13 Þetta félag var við lýði í um það bil sex
ár. Þar starfaði Haraldur af lífi og sál og öðlaðist vissu um
raunveruleika kraítaverka og yfímáttúmlegra fyrirbæra sem höfðu
úrslitaáhrif á skilning hans á tilurð og gildi kristindómsins.
Þó svo að þetta félag kenndi sig við tilraunir hafa áhrif þess
einkum verið af trúarlegum toga. Raunar mætti alveg eins kalla
það trúfélag eins og tilraunafélag því þar voru haldnar
guðsþjónustur og miðilsfundimir vom með trúarlegum blæ.
Haraldur virðist mjög snemma hafa farið að bera saman þau
dularfullu fyrirbrigði sem komu fram á miðilsfundunum við
frásögur Biblíunnar af kraftaverkum og yfimáttúmlegum
fyrirbæmm. Hann varð fljótt sannfærður um að ýmislegt af því
sem gerðist á tilraunafundunum væm hliðstæð eða jafnvel sömu
fyrirbærin og sagt er frá í guðspjöllunum í sambandi við líf Jesú.
Hann bar þessi fyrirbæri einnig saman við frásagnir Nýja
testamentisins af fýrstu kristnu söíhuðunum og fann þar hliðstæður
við miðilsfyrirbærin. Hér var um að ræða gáfur andans, tungutal,
spádómsgáfu, útrekstur illra anda, kraftaverkalækningar og líf eítir
dauðann.
í tengslum við miðilsfundina var farið með bænir og sálmar
vom sungnir. Þau fýrirbæri sem komu fram og þau öfl sem
skírskotað var til í þessu sambandi vom meira og minna trúarlegs
43