Morgunn - 01.06.1994, Page 53
MORGUNN
„Hræðist eigi - hann er upprisinn“. Þessi dýrðlegu orð
páskaboðskaparins svifta að lokum burt dimmasta skýinu, sem
grúfir yfír lífinu, sorta grafarinnar. Ef það er nokkuð, sem í
sannleika gerir oss dimmt íýrir augum, þá er það dauðinn. Hversu
oft finnum vér til þess, þegar vér stöndum kringum líkbömmar. O,
hve það syrtir að, þegar dauðinn kemur; og ef vér hugsum til vors
eigin dauða, sem óumflýjanlega bíður vor allra, hversu dimmt er
þá fram undan oss, ef vér eigi höfum kristna trú til að lýsa oss.
Enginn spekingur veraldarinnar getur með eigin hyggjuviti sagt
oss neitt áreiðanlegt um dauðann, hvort nokkuð taki þá við, eða
hvað þá taki við. Jafnvel hin háleitustu vísindi svara þar því einu:
Um það vitum við ekki neitt. Þeim sorta megna vísindin og
mannvitið aldrei að dreifa. Og þó þráir mannsandinn ekkert meir
en lausn á þeirri gátu. En kristna trúin ein getur ráðið þá gátu,
kristna trúin ein lýsir oss í því myrkri. Hún segir við oss; Hræðist
eigi dauðann, Kristur er upprisinn.
... Rennið huganum aftur yfir aldimar og út yfir mannkynið, og
hugsið til þess, hvflíka huggun von eilífs lífs hefir fært krismum
mönnum á öllum öldum og hvflíkt ljós hún færir þeim enn þann
dag í dag. Von eilífs lífs sættir oss fyrst að fullu og öllu við lífið.
En ef sá er hér nokkur inni, sem enn hefir ekki öðlast þessa trú,
þá kappkosta að höndla hana, og þú skalt fá að reyna að það birtir
yfir lífi þínu.íl16
Tvennt er athyglisvert við þessa ræðu. í fýrsta lagi er það
nafnbreytingin. í seinni útgáfunni er í heiti predikunarinnar sleppt
hinu almenna orðalagi „yfir lífinu við boðskap upprisunnar“, en í
kaflanum sem bætt var við er ávarpið orðið persónulegt. Hann
segir \)á:„það birtir yfir lífi þínu“. Hér emm við að mínu mati
komin að meginkjama þeirrar áherslu sem spíritisminn hafði fyrir
predikun Haralds. Páskaboðskapurinn um eilíft líf var ekki lengur
almennt orðaður og bundinn við tákn um guðs ríki sem er í nánd
heldur var skírskotað til hvers og eins persónulega og þeim gefin
hlutdeild í upprisunni, sem hér þýddi líf eftir dauðann. Það var
þessi huggunarboðskapur sem fólkið þráði að heyra við
51