Morgunn - 01.06.1994, Blaðsíða 58
MORGUNN
stein í hring eða ósamhverfan; lit sem er í jafnvœgi
eða ekki o.sfrv.
Jafnvægið í karl- og kvenorkunni í þér breytist ekki eftir því
hvoru kyninu þú tilheyrir í jarðvistum þínum. Það hefur í raun
ekkert með það að gera hvort líkami þinn er karlkyns eða
kvenkyns.
Til dœmis gœtirðu verið stríðsmaður með 95%
kvenorku og 5% karlorku. Hvort þú ert karlmaður
eða kona mun ekki breyta þessu grundvallar-
jafnvœgi orkunnar.
Orkan getur verið 60% karlorka og 40% kven-
orka, hlutverkið sögumaður og kyniðíivort heldur
er karl eða kvenkyn. Hlutföll orkunnar munu verða
þau sömu í hverju einasta lífi jarðvistarferilsins.
En einstaklingur sem hefur meiri karl- en kvenorku verður
miðaðri, beinskeyttari og sértækur í reynsluöflun sinni, hvað
svo sem kynferðinu líður. Því meiri kvenorku sem einstakling-
urinn hefur, því víðari og meira skapandi lífssýn og þessu
fylgir jafnframt minni miðun, hvaða kyni svo sem viðkomandi
tilheyrir.
Sumir sálkjamar hafa valið sér að hafa sérlega mikið af
kven- eða karlorku en aðrir aftur á móti jafnari hlutföll; nær
50% af hvoru.
Þú munt hafa tilhneigingu til að laðast að fólki sem hefur
aðra orkusamsetningu en þú. Til dæmis myndi hagleiksmanni
sem hefur 80% kvenorku og 20% karlorku líða einna best með
einhverjum sem hefur 80% karlorku og 20% kvenorku. Þetta
er þægilegasta samsetningin í tveggja manna tengslum; þ.e.
andstæður sem vega þá hvor aðra upp.
En þessi æskilegu hlutföll eru samt alls ekki alltaf til
staðar á milli hjóna eða para, hversu þægilegt sem það nú
annars væri. Aðrir þættir, s.s. karma og samkomulag um
samstarf, valda því. Því gætu tveir einstaklingar sem báðir
hafa mikið af kvenorku valið að vera samvistum eða þá tveir
56