Morgunn


Morgunn - 01.06.1994, Page 62

Morgunn - 01.06.1994, Page 62
MORGUNN skeiði. Karl- og kvenorkan í heiminum mun virðast í jöfnum hlutföllum um nokkum tíma þ.e. á meðan umskiptin em að fara fram og kvenorkan verður um skamma hríð jöfn karlorkunni, en svo tekur hún völdin. Innan þessara skeiða kemur engu að síður fram aukin karl- eða kvenorka í hinum ýmsu þjóðfélögum heimsins, burtséð frá heildarorkunni. Þó þessi pláneta hafi nú lotið karlorkunni um afar langt skeið hefur nienningarsamfélag Indlands engu að síður honð mikil einkenni kvenorku. Þar hefur kvenorka tjáð sig á margan hátt innan ramma karlorkunnar sem hefur einkennt hetta skeið og verið ríkjandi t.d. í vestrænum samfélögum svo og ýmsum öðrum. Þetta skapar grundvöll fyrir reynstu af aðstœðum sem einkennast af kvenorku sem og þeini sem eru merktar karlorkunni. Og þetta fyrirkomulag sér til þess að unnt sé að upplifa þessa hluti á hvaða tíma mannkynssögunnar sem er. í stuttu máli: hvert og eitt ykkar hefur í sér ákveðið hundr- aðshlutfall kvenorku og karlorku. Hlutföllin gefa hverjum um sig einstakt yfirbragð og það helst frá einu lífi til þess næsta, allan jarðvistaferilinn. Allir leitast við að skapa jafnvægi í þessum hlutföllum með samböndum sínum við annað fólk. Tímabilin á æfi karla og kvenna Bæði karlmenn og konur ganga í gegnum reglubundin skeið í lífi sínu, burt séð frá orkuhlutföllum hvers og eins. Reglubundin skeið karla Karlmenn ganga í gegnum þrjú skeið sem hvert um sig er u.þ.b. átján daga langt og þau endurtaka sig æ oní æ alla ævina á enda. Þessi skeið eru: 1. áreitni skeið (hreyfiskeið); 2. vitrænt skeið og 3. sjálfsskyggniskeið (tilfinningaskeið). A áreitniskeiðinu hafa karlmenn meiri orku og eru betur vakandi gagnvart öllu. Þeir sofa minna, líkami þeirra gefur frá 60

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.