Musica - 01.07.1948, Qupperneq 25
Ur hljómlistarlífinu
Sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur og Söngfélagið
Harpa héldu sameiginlega hljómleika í Trípolíbíó
í maí s. 1. ViSfangsefni voru tvö verk eftir Karl O.
Runólfsson, tónskáld: Svíta fyrir hljómsveit og Cant-
ata fyrir kór, hljómsveit og einsöngvara.
Einsöngvarar með kórnum voru þeir Ölafur Magn-
ússon frá Mosfelli og Birgir Halldórsson.
Stjórnandi var Dr. Victor von Ufbantschitsch.
Hljómsveitin var með ágætum og skilaði sínu hlut-
verk vel, en heldur var kórinn veigalítill og naut
Cantatan sín ekki sem skyldi í meðferð hans, sér-
staklega voru dýpri raddirnar veigalitlar.
Þessi tvö verk Karls O. Runólfssonar eru mjög at-
hyglisverð og er það vel, að svítan varð fyrir valinu
til flutnings á Norrænu tónlistarhátíðinni.
Það hefur eflaust valdið mörgum vonbrigðum, að
hljómleikarnir skyldu ekki verða endurteknir, því að
færri komust að en vildu, en því voru 'hljómleikarnir
haldnir í Trípoh?
Þjóðlagasöng\onan Gagga Land
Hin vinsæla þjóðlagasöngkona Engel Gagga Lund
hélt hljómleika í Austurhæjarbió í apríl. Undirleik
annaðist dr. Páll Isólfsson.
Það er ávallt mikil ánægja að hlýða á Göggu Lund
ekki svo mikið vegna söngs hennar, þó að hann sé
ágætur, heldur gerir öll framkoma hennar og út-
skýringar sitt til að skapa sérstaka „stemningu“ meðal
áheyrendanna.
Undirleikur dr. Páls var ágætur og var hann söng-
konunni mikil stoð.
Karlakprinn Fóstbrccður
hélt söngskemmtun hér í maí. Söngstjóri var Jón
Halldórsson. Var samsöngur kórsins allur hinn vand-
aðasti og efnisskráin samin með geðþekkum og létt-
um blæ yfirleitt.
Auk kórsins kom fram hinn vinsæli söngvari Krist-
ján Kristjánsson og söng nokkur lög. Hljómleikarnir
fóru prýðilega fram og á kórinn, söngstjórinn og
einsöngvararnir þakkir skilið fyrir hugljúft kvöld.
Samband reybjvís\ra \ir\ju\óra
hélt hljómleika í Reykjavík í maí (sjá grein á öðrum
stað hér í blaðinu).
Erling B/öndal Bengtson
hélt hljómleika í Austurbæjarbíó í maí. Undirleik
annaðist dr. Victor von Urbantsdhitsch. Það e,r mjög
ánægjulegt að heyra þær framfarir, er orðið hafa
á leik þessa unga snillings síðan hann gisti ísland
síðast. Tónninn er orðinn mun mjúkari og vald hans
yfir hljóðfærinu enn meira en þá. Eiga þeir menn
hérlendis, er mest hafa hjálpað Erling litla áfram
á listabrautinni miklar þakkir skildar fyrir örlæti sitt
og 'hjálpsemi. Því ef Erling heldur áfram að þjálfa
sig eins og hann hefur gert hingað til, má vænta, að
heimurinn verði einum snillingnum ríkari.
Té/(/(nes\i /(larinettleikarinn
Jan Moravék og íslenzka óperusöngkonan Svanhvít
Egilsdóttir héldu sameiginlega hljómleika í Ha'fnar-
firði í apríl við ágætar undirtektir áheyrenda.
Agnes Sigurðsson, hljómleikar.
EFNISSKRÁ:
Beethoven: Sónata op. 101.
Allegro, ma non troppo.
Vivace alla marcia.
Adagio, ma non troppo, con afetto.
Allegretto.
Brahms: Intermezzo.
Mendelsohn: Rondo Capriccioso.
Schuman: Romance.
Chopin: Polonaise.
Ravel: Une Barque Sur L’Ocean.
Ravel: Pavane.
Debussy: Feu d’Artifice.
Fauré: Nooturne.
St. Saéns: Etude en forme de Valse.
Ungfrú Agnes Sigurðsson hélt tvo hljóleika á veg-
um Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíó í júní.
Heldur var efnisskráin veigalítil, og má segja, að
sónata Beethovens hafi verið það eina, sem hreif, þó
að hún hafi ekki notið sín sem skyldi í meðferð
ungfrúarinnar. Framh. á bls. 29.
■MUSICA 25