Sindri - 01.10.1920, Side 9

Sindri - 01.10.1920, Side 9
SINDRI Aldar-afmæli rafsegulsins. í sumar, 21. júlí, voru liðin 100 ár frá því er H. C. Orsted birti tiiraunir þær og athuganir er hann hafði gert viðvíkjandi áhrifum rafstraums á segulnálina. Hefir þessa merka viðburðar verið minst um mest-allan heim, en aðalhátíðahöldin munu hafa verið í Danmörku, föðurlandi Orsteds. Sökum þess, að erfitt var að koma þeim við á sjálfum afmælisdeginum, var þeim frestað til loka ágústmánaðar. Samtímis var fundur hald- inn í Iðnfræðafjelagi íslands, hjer í Reykjavík, þar sem Orsteds var minst og lesin upp ritgerð hans, er hjer fer á eftir í ís- lenskri þýðingu eftir Steingrím Jónsson, raffræðing. Allir sem nokkuð eru kunnugir raffræði, vita hvaða þýðingu uppgötvun Orsteds hefir haft fyrir raftækni nútímans, því að án hennar myndum vjer eigi hafa flest þau raftæki er vjer höfum nú til þess að gera oss lífið þægilegt og skemtilegt. Frá því á dögum Gilberts, í Englandi, um 1600, hefir rafið jafnan dregið að sjer athygli mestu vísindamanna hvers tíma, og á 220 ára tímabilinu, frá 1600 til 1820, getur sagan margra merkra manna er fleyttu þekkingunni á rafi og notkun þess nokkuð fram. Má þar nefna Þjóðverjann von Guericke, sem um miðja 17. öld bæði smíðaði rafvjel og sýndi fram á ýms fyrirbrigði um leiðslu rafs eftir efnum. Ennfremur má telja Boyle, Hauksbee, Stephen Gray, Dufay, von Kleist, Benjamín Franklm, Volta, Le Sage, Coulomb, Galvani og Humphrey Davy. En svo má segja, að með uppgötvun Orsteds myndist nýtt tímabil í sögu rafsins. Er nógu gaman að líta yfir og sjá hverjir þá voru uppi af þeim mönnum er frægir hafa orðið

x

Sindri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sindri
https://timarit.is/publication/729

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.