Sindri - 01.10.1920, Side 18

Sindri - 01.10.1920, Side 18
12 IÐNAÐAR-HUGLEIÐINGAR SINDRI blómgast hjer engu síður en annars staðar, sjeu þær reknar á skynsamlegan hátt. Auðsuppsprettur eigum vjer í sjó og á landi og sem betur fer hafa ýmsir atorkumenn ausið úr þeim, einkum hvað sjávarútveg snertir. En afurðirnar fara óunnar eða hálfunnar í önnur lönd og eru því mikið óarðvænni en ella. Fyr eða síðar munum vjer eins og aðrar þjóðir komast að raun um, að hagur einstaklinga og þjóðarinnar fer eftir* því hve mikið og vel er unnið úr því, sem náttúran leggur oss til. Hjer má lauslega minnast á þær iðnaðargreinar, sem í fljótu bili virðast vera arðvænlegar. LVSISVINSLA. Onnur aðal afurð útvegsbænda er lýsið, sem að mestu leyti er selt óunnið til útlanda fyrir lítið verð í samanburði við það, sem fá mætti fyrir unnið lýsi, bæði á útlendum og innlendum markaði. Lýsis meðferð hjá oss er eins og menn vita, á mjög lágu stigi, enda verður það tæplega notað til annars en leður- verkunar og verður því ekki búist við háu verði fyrir það er- lendis. Venjulega er óhreinsuð lifrin látin í tvíbytnur eða ámur; við geymsluna sjálfrennur hún að nokkru leyti í ílátunum, tekur í sig súrefni og þránar þess vegna. Sjálfrunnið lýsi er í fyrstu gulleitt, en fari það að rotna í ílátunum, verður það brúnleitt og daunilt. Síðari árin hefir lýsis meðferðin dálítið batnað, að því leyti, að lifrin er brædd áður en trefjarnar rotna. En lýsið getur samt ekki talist fyrsta flokks vara sök- um þess, að lifrin er illa hreinsuð í ílátin og tunnurnar verða fyrir áhrifum lofts og sólar, en þau valda þráa. Meðferðin verður að breytast til batnaðar, því fyrsta flokks lýsi er dýr- mætara en margur hyggur. All langt er síðan menn vissu að lýsið var of dýrmætt til notkunar í venjulegu ástandi. Var því reynt að hreinsa það á ýmsan hátt og breyta því í feitmeti. Hreinsunin var lengi vel ófullkomin, en nú kunna menn ráð til þess að breyta lýsi í ágætis viðbit og læknislyf, en úr- ganginn nota þeir til iðnaðar og skepnufóðurs. Arðvænlegust þykir lýsishersla. Við slíka meðferð breytist lýsið að útliti og

x

Sindri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sindri
https://timarit.is/publication/729

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.