Sindri - 01.10.1920, Page 23

Sindri - 01.10.1920, Page 23
SINDRI NÁMUIÐNAÐUR 17 til rannsókna. Hvorttveggja er hættulegt og óhyggilegt, og gerir erfitt að koma fram hlutlausum og nauðsynlegum rann- sóknum. Það virðist því ekki úr vegi að SlNDRI, sem hið fyrsta alþýðlega iðnfræðirit lslands, flytji lesendum sínum nokkrar alþýðlegar greinar um þessi efni. Það er ekki tilætlun mín að semja í þetta sinn svo ítar- legar greinar, að þær taki alt með eða verði nægileg kenslu- bók í námuiðnaði. Heldur ekki verður farið út í hin vísinda- legu grundvallaratriði, sem notuð eru til sönnunar hinum ýmsu kenningum í fræðigreinum þeim, er ræddar verða hjer á eftir. Það sem jeg hefi í huga, er að skýra frá hverjar þessar fræðigreinar eru og í sjerstökum greinum síðar meir að gefa stutt og auðskilið yfirlit yfir hverja þeirra fyrir sig. jARÐFRÆÐI. (Geology.) Þekking á því, hvað er verðmætt í jörðunni og hvað ekki, og hvar og hvernig verðmætanna beri helst að Ieita, heyrir undir jarðfræðina. Frá námufræðilegu sjónarmiði skiftist því jarð- fræðin í tvent, vísindalega jarðfræði, sem rannsakar og skýrir myndunarsögu jarðskorpunnar og samsetningu hennar, og hag- nýta jarðfræði, sem aðallega fæst við þekkingu á myndun og samböndum verðmætanna. En þar sem hagnýta jarðfræðin verður að sækja allan fróðleik sinn og heimildir til þeirrar vísindalegu, þá verður altaf að læra vísindalegu jarðfræðina fyrst, sem undirstöðu undir hina. STEINAFRÆÐI. (Minerallogy.) Eftir að jarðfræðin hefir gefið bendingu um það, hvar verð- mæta sje helst að leita í jörðunni og í hvers konar sam- böndum þau geti verið, þá verður að taka steinafræðina til aðstoðar til að þekkja steina þá og málmsambönd, sem finn- ast á rannsóknarstaðnum. Þetta er oftast erfitt að gera nema hægt sje að ná í fersk og órotin sýnishorn, því vatn og sýrur loftsins ásamt tætingsöflum veðráttunnar breyta svo útliti hinnar ystu jarðskorpu, að upphaflegt útlit bergtegundanna er orðið 2

x

Sindri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sindri
https://timarit.is/publication/729

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.