Sindri - 01.10.1920, Side 24
18
NÁMUIÐNAÐUR
SINDRI
óþekkjanlegt. Þessi breyting eða rotnun bergtegundanna af
áhrifum loftsins er kölluð veðrun.
Það er sjaldnast að steinafræðingurinn geti haft nægileg
áhöld með sjer á rannsóknarferðum út um sveitir, til að geta
sagt ákveðið á staðnum hvaða bergtegund sje um að ræða
og hver sje samsetning hennar. Hann verður því að taka
óveðruð sýnishorn með sjer þangað, sem nægileg áhöld eru
fyrir hendi, rannsaka þau þar og leysa upp í frumefni sín.
Slík uppleysing og athugun á steinum og málmum er nefnd
MÁLMFRÆÐI
(Metallurgy)
og fer fram í málmfræðideild efnarannsóknarstofunnar. Hún
byggist aðallega á efnafræði og er því allítarleg þekking á
þeirri fræðigrein nauðsynleg. Hin endanlega vinsla málmanna
og verðmætanna úr samböndum sínum í jörðunni (hráefnun-
um) byggist aðallega á málmfræðinni og efnafræðinni, svo og
hagnýting hvers þess efnis, sem finst í samböndum við hrá-
efnin, þótt annars væri að engu metið.
Þegar ákveðið er að virkja beri einhverja námu, annaðhvort
vegna þess, að þörfin heimti efni það, sem um er að ræða,
enda þótt vinsla þess gefi lítinn eða engan hreinan arð, eða
af því, að náman eða jarðlögin eru svo auðug að arðberandi
efni, að töluverður hagur er að vinslunni, þá er byrjað að
grafa — náman opnuð — og þá kemur til kasta
NÁMUFRÆÐINNAR.
Hún fjallar um öll þau efni er að námugreftrinum lúta, að
gera hann haganlega, öruggan og arðberandi. • Námufræðin
skiftist í eftirfarandi aðalgreinar:
a. Námupitti (Shafts), það er lóðrjett göng eða pitti niður í
jörðina, hvernig best er að grafa þá og gera þá örugga.
b. Námugöng og jarðgöng (Tunnels), lárjett og skáhöll göng
neðanjarðar; gröft þeirra og öryggi.
c. Námugröft (Excavation); hvernig jörðin er holuð út og
verðmætin tekin úr henni án þess að slys hljótist af. Undir